> ## Content Index
> Fetch the complete content index at: https://www.hafdishuld.is/llms.txt
> Use this file to discover other available public pages before exploring further.

# Vika 1 - Fyrsta vikan
- URL: https://www.hafdishuld.is/vika-1-fyrsta-vikan/
- Published: 2026-09-04T16:02:20.000Z
- Updated: 2026-09-04T16:02:20.000Z
- Author: Hafdís Huld Björnsdóttir

**Vikan 1.09.2025-04.09.2025**  
Sem betur fer kom ég full af fjallalofti inn í fyrstu vinnuvikuna.

Við hjónin tilheyrum Fjallabandalaginu, gönguhóp hjá Fjallafélaginu. Mætti kannski halda að það væri á vegum Fjallabyggðar, en svo er ekki. Það vantar sannarlega ekki fjöllin í líf mitt þessa dagana.

Um helgina brunuðum við suður, tjölduðum í Landmannahelli og gengum á Löðmund. Daginn eftir lá leiðin að Rauðufossum og upp að Auganu. (Takk mamma fyrir að passa)

Ég gleymi kannski einu smáatriði. Jeppinn bilaði, þetta er sem sagt ekki allt dans á rósum. En í góðra vinahópi þá reddast allt.

Eins og venjulega eftir helgi með þessum hópi sátu eftir strengir í fótleggjum, magavöðvum og ekki síst brosvöðvum. Við skelltum líka upp langborði eins og okkur einum er lagið og áttum einstaklega góða helgi saman.

![](https://storage.ghost.io/c/b7/50/b750cea3-05c5-4ea2-959b-63fae3d6d9d1/content/images/2026/09/L----mundur-og-Auga--.png)

😂

****Strengir í fótleggjum, magavöðvum og brosvöðvum. Þvílík lífsgæði.**

Bjarni varð síðan eftir fyrir sunnan til að koma jeppanum í viðgerð en við mæðgur brunuðum norður. Það var einstaklega næs að keyra á móti sunnudagsumferðinni og hlusta á [DriftEA podcastið](https://open.spotify.com/episode/76mUfhwMtxPDsquai23R7c?ref=hafdishuld.is) á leiðinni norður.

## Hvíld

Mánudagurinn var tekinn í hvíld og smá andlegan undirbúning fyrir fyrsta vinnudaginn.

Ég fékk þó tækifæri til að prófa enn fleiri innviði á svæðinu. Í þetta skiptið sjúkrahúsið, eftir smávægilegt óhapp hjá dóttur minni sem ég vildi láta kíkja á.

Ég verð að segja að ég hef sjaldan fengið jafn snögga og góða heilbrigðisþjónustu.

Það er ákveðin ró sem fylgir því að flytja á nýjan stað og finna strax hvað svona nærþjónusta skiptir miklu máli.

## ...og svo var skrúfað frá brunahananum

Svo rann fyrsti vinnudagurinn upp.

Ég hef fengið alls konar aðvaranir og ráðleggingar fyrir þetta ævintýri. Hingað til hef ég að mestu hlegið að þeim.

Núna skil ég kannski aðeins betur hvað fólk var að meina.

**Ég veit eiginlega ekki hvernig ég á að lýsa fyrsta deginum öðruvísi en að mér hafi liðið eins og skrúfað hefði verið frá brunahana beint á mig.😄**

![](https://storage.ghost.io/c/b7/50/b750cea3-05c5-4ea2-959b-63fae3d6d9d1/content/images/2026/09/ChatGPT-Image-Sep-4--2026--03_56_02-PM.png)

Athugið - Myndin er ekki af skrifstofunni heldur sköpunarverk gervigreindarinnar

Og mikið rosalega var gaman. Áskoranir eru nefnilega ekkert sérstaklega fráhrindandi fyrir mig. Þvert á móti.

Það sem hefur þó skipt mig mestu fyrstu dagana er að finna hvað ég er með gott fólk í kringum mig.

Á örfáum dögum hef ég séð starfsfólk bæjarins takast á við ótrúlega fjölbreytt verkefni, leysa úr málum, svara símtölum, bregðast við hinu óvænta og halda áfram með verkefnin sem þegar voru á borðinu.

Það veitir ákveðið öryggi að stíga inn í nýtt hlutverk og finna strax að þar er mikil þekking, reynsla og vilji til að láta hlutina ganga. Það var líka einstaklega fallegt að finna bolla merktan "mér" á kaffistofunni.😄Eins barmerki sem ég mun klárlega nota við hátíðleg tilefni. 

![](https://storage.ghost.io/c/b7/50/b750cea3-05c5-4ea2-959b-63fae3d6d9d1/content/images/2026/09/Vinnan-og-berjam---1.png)

## Hvað á að gera, í hvaða röð og hver á að gera það?

Það sem heillar mig einna mest við starfið er samspil heildarinnar.

Íbúarnir, starfsfólkið, fyrirtækin, pólitíkin, stjórnsýslan, ríkið, allar þessar stofnanir og fjármögnunin

Í sinni einföldustu mynd snýst þetta oft um fjórar spurningar:

👉

****Í sinni einföldustu mynd snýst þetta oft um fjórar spurningar:**  
Hvað á að gera?  
Í hvaða röð á að gera það?  
Hver á að gera það?  
og...hver borgar?

Svo verður umhverfið flókið og þá reynir á að halda utan um gullþræðina. Að sjá heildina, forgangsraða og láta kerfið vinna fyrir fólkið en ekki öfugt.

Það er líklega sá hluti starfsins sem ég hlakka hvað mest til að takast á við. Eins að tryggja það að það sé skemmtilegt og gefandi að vinna hjá Fjallabyggð.

## Frá jólakveðju yfir í ofanflóðahættumat

Ég er strax búin að missa tökin á dagbókinni minni.

Boltarnir koma einfaldlega úr öllum áttum.

Það sem virðist mikilvægt að morgni getur verið komið aftar í röðina eftir hádegi vegna þess að eitthvað annað er orðið aðkallandi.

Og verkefnin gætu varla verið fjölbreyttari.

Á einum tímapunkti er maður að ræða jólakveðju bæjarstjóra fyrir næstu jól og á öðrum endurskoðað ofanflóðahættumat eða Fljótagöng.

Ég ætla ekki að þreyta ykkur með öllum tæknimálunum sem fylgja því að byrja á nýjum vinnustað. Það þekkja líklega flestir að fyrstu dagarnir fara að einhverju leyti í að fá aðgang að kerfum, setja upp búnað og koma hlutunum þannig fyrir að maður geti farið að gera eitthvað gagn.

Ég las um daginn að eitt af mikilvægustu verkefnum nýs stjórnanda væri að komast sem fyrst að núllpunktinum. Punktinum þar sem maður hættir að kosta meira í tíma og fyrirhöfn en maður skapar í virði.

Ég á enn eitthvað í land með það.

Dagur tvö átti til dæmis að verða örlítið bærilegri en dagur eitt.

Samt náði ég ekki einu sinni að tengja tölvuskjáina mína.

Það bíður betri tíma.

## Engin ástæða til að finna upp hjólið

Einn nytsamlegasti fundur vikunnar var sveitarstjóraspjall sem SSNE stendur fyrir.

Mér finnst ótrúlega mikilvægt að sveitarfélög tali saman og læri hvert af öðru.

Það er algjör óþarfi að finna upp hjólið aftur og aftur. Ef eitthvað er vel gert annars staðar eigum við að geta fengið hugmyndina lánaða, lagað hana að okkar aðstæðum og vonandi líka miðlað áfram því sem við gerum vel.

Það er mikil þekking til staðar úti um allt land og mikill styrkur í því að geta leitað til fólks sem stendur frammi fyrir svipuðum verkefnum.

## Fólkið á milli fundanna

Svo fylgja auðvitað alls konar stundir sem minna mann á hvers vegna maður vildi taka þetta starf að sér.

Úr glugganum á bæjarskrifstofunni sá ég til dæmis glitta í 60 plús gönguhópinn.

Ég hef verið að fylgjast aðeins með þeim og auðvitað stökk ég niður þegar ég sá þau, náði að segja hæ og kynna mig.

![](https://storage.ghost.io/c/b7/50/b750cea3-05c5-4ea2-959b-63fae3d6d9d1/content/images/2026/09/G--nguh--pur-1.png)

Þetta eru stundir sem mér finnst skipta máli.

Ekki endilega stórir fundir eða formleg mál heldur bara að hitta fólk, heilsa, hlusta og kynnast samfélaginu aðeins betur dag frá degi.

Dagur tvö fól líka í sér fyrsta sjónvarpsviðtalið. Ég krossa fingur fyrir að það komi sæmilega út. Ég gerði að minnsta kosti mitt besta, geri betur næst og allt það.

Ég fékk kærkomið boð til Ólafsfjarðar og átti góða stund með [Rótarýklúbbnum á Ólafsfirði](https://www.facebook.com/search/top?q=r%C3%B3tar%C3%BDkl%C3%BAbbur%20%C3%B3lafsfjar%C3%B0ar). Það sem ég fékk góðar kótelettur og m.a.s nokkrar í nesti handa Bjarna! 

![](https://storage.ghost.io/c/b7/50/b750cea3-05c5-4ea2-959b-63fae3d6d9d1/content/images/2026/09/R--tar--.png)

Það sat ýmislegt eftir hjá mér eftir þá kvöldstund og nokkrir gullmolar sem ég mun taka með mér inn í hlutverk bæjarstjóra. 

Kjörorð alþjóðahreyfingarinnar er *"Þjónusta ofar eigin hag"*   
Eins fannst mér fjórpróf Rótarýfélaga líka áhugavert og mun eflaust nýtast mér persónulega mjög vel. Það er:

💡

****Fjórpróf Rótarýfélaga**  
Er það satt og rétt?  
Er það drengilegt?  
Eykur það velvild og vinahug?  
Er það öllum til góðs?

## Kveikt á kerti

Í vikunni þá kveikti ég líka á kerti og minntist fyrrum bekkjarfélaga míns hans, Arnars Þórs Joensen Ægissonar. Finnst afskapalega leitt að hafa ekki náð að vera viðstödd jarðarförina en sendi ættingjum, bekkjarfélögum mínum og vinum mínar dýpstu samúðarkveðjur. 🫶 Er líka þakklát fyrir öll knúsin og símtölin.

Vikan hefur verið allskonar, sorleg, skemmtileg, krefjandi, hvetjandi, letjandi og allt þar á milli.

### Örlítil eftirsjá

Alls ekki eftir því að hafa tekið að mér þetta verkefni heldur að hafa fengið þessa hugmynd um vikulega dagbók.

Ekki af því að það sé ekkert að segja frá.

Heldur þvert á móti. 

Hvernig í ósköpunum á maður að koma heilli viku fyrir í einni færslu þegar hver dagur virðist innihalda efni í sína eigin?

Kannski er það þó einmitt tilgangurinn með þessu.

Ekki að segja frá öllu heldur leyfa ykkur að sjá nokkur brot. Fólkið, fundina, stóru málin, litlu augnablikin og allt það sem aldrei ratar í fundargerðir.

Og ef fyrstu dagarnir gefa einhver fyrirheit um framhaldið þá verður að minnsta kosti ekki skortur á efni.  
  
Þangað til næst