> ## Content Index
> Fetch the complete content index at: https://www.hafdishuld.is/llms.txt
> Use this file to discover other available public pages before exploring further.

# Vika 3 - Fjölskyldu- og ævintýramanneskja
- URL: https://www.hafdishuld.is/vika-3-fjolskyldu-og-aevintyramanneskja/
- Published: 2026-09-18T09:00:27.000Z
- Updated: 2026-09-18T09:00:27.000Z
- Author: Hafdís Huld Björnsdóttir

Fjölskyldu- og ævintýramanneskja. Það er ekki að ástæðulausu að það var alltaf það fyrsta sem ég nefndi þegar ég var spurð hver ég væri í ráðningarferlinu fyrir bæjarstjóra Fjallabyggðar.

Og þar sem ég vil helst að hljóð og mynd fari saman var mjög viðeigandi að helgin fór nánast alfarið í fjölskylduna. Með þeirri undantekningu þegar mér tókst annaðhvort að tvinna saman vinnu og fjölskyldulíf eða þegar mörkin voru mjög skýr, bæði fyrir mig og fjölskylduna.

Það að vinna sig í hel er nefnilega hvorki sjálfbært né sérstaklega gefandi fyrir neinn.

Þetta snýst líka um stærri spurningu. Hvernig samfélag viljum við skapa og hvaða tengingu við heimabyggðina viljum við bjóða börnunum okkar?

### Fyrsti bæjarstjórinn sem...

Helgin fór að mestu í fjölskylduna en við kíktum meðal annars á Myndasöguhátíðina á Siglufirði. Þar var ótrúlega gaman að sjá allt þetta skapandi og drífandi fólk og hvað það verður mikil orka til þegar fólk fær rými til að skapa, sýna og deila því sem það er að gera.

![](https://storage.ghost.io/c/b7/50/b750cea3-05c5-4ea2-959b-63fae3d6d9d1/content/images/2026/09/Gulur-dagur--1-.png)

Við fjölskyldan höfðum mjög gaman af. En það sem gladdi mig líklega mest var þegar einn skipuleggjandinn sagði við mig:

> „Þú ert fyrsti bæjarstjóri Fjallabyggðar sem kemur á Myndasöguhátíðina.“

Þetta sat svolítið í mér.

Ég held nefnilega að mig langi að vera oftar „fyrsti bæjarstjóri Fjallabyggðar sem...“

Fyrsti sem mætir eitthvað. Prófar eitthvað. Tekur þátt í einhverju óvæntu. Kynnist fólki sem hefur kannski ekki áður átt mikið samtal við bæjarstjórann.

Ekki til þess að geta verið fyrst. Heldur vegna þess að bæjarstjóri á að mínu mati ekki bara að vera þar sem búist er við honum.

**Hann á líka að vera þar sem samfélagið er.**

Svolítið eins og kommentið sem ég fékk þegar ég kom af skólabalanum:

> „Hva, ert þú bara farin að leika þér með krökkunum?“

Já. Ég er þannig bæjarstjóri.

![](https://storage.ghost.io/c/b7/50/b750cea3-05c5-4ea2-959b-63fae3d6d9d1/content/images/2026/09/IMG_6361.JPEG)

Sá sem ætlar að setja tíma, hjarta og haus í bæjarfélagið. En líka sá sem ætlar að muna að samfélag snýst ekki bara um fundi, minnisblöð og fundargerðir. Það snýst um fólkið sem býr hér og lífið sem fer fram á milli fundanna.

### Frá Siglufirði til Suður Kóreu

Svo kom mánudagur og vinnuvikan hófst á stöðufundum, skipulagi og samskiptum.

Ég hitti Ferðaklasa Fjallabyggðar og vá, þar er áhugavert verkefni á ferðinni.

![](https://storage.ghost.io/c/b7/50/b750cea3-05c5-4ea2-959b-63fae3d6d9d1/content/images/2026/09/IMG_6393.JPEG)

Ólöf Ýr og Sanna hjá Ferðaklasa Fjallabyggðar

Síðan fékk ég tækifæri til að taka á móti sendinefnd frá Suður Kóreu vegna samstarfs [Grænafls](https://www.graenafl.is/?ref=hafdishuld.is) og kóreskra aðila um rafvæðingu fiskiskips.

![](https://storage.ghost.io/c/b7/50/b750cea3-05c5-4ea2-959b-63fae3d6d9d1/content/images/2026/09/e0c10825-9b0d-43db-bca4-b62596764851.jpg)

Mynd frá Grænafli

Og þetta er eiginlega miklu stærra en eitt skip.

Verkefnið markar fyrstu skrefin í rafvæðingu íslenska strandveiðiflotans og þau skref eru tekin hér, á Siglufirði.

Mér finnst eitthvað ótrúlega skemmtilegt við það.

Við tölum oft um nýsköpun eins og hún þurfi að gerast í stórum fyrirtækjum, stórum borgum eða einhvers staðar langt í burtu. En hér getur lítið sjávarbyggðarlag á Norðurlandi orðið tilraunavettvangur fyrir lausnir sem síðar gætu nýst miklu víðar.

Ísland og Suður Kórea eru vissulega ansi langt hvort frá öðru á kortinu, en við eigum ýmislegt sameiginlegt. Hafið hefur mótað samfélögin okkar, atvinnulífið og sjálfsmyndina. Og bæði lönd standa frammi fyrir þeirri spurningu hvernig sjávarútvegur framtíðarinnar nýtir hreinni orku og nýja tækni.

![](https://storage.ghost.io/c/b7/50/b750cea3-05c5-4ea2-959b-63fae3d6d9d1/content/images/2026/09/f5dad12b-d126-4d74-806f-88f78e141beb.jpg)

Mynd frá Grænafli

💡

****Stærð samfélags segir nefnilega ekki endilega neitt um stærð tækifæranna.**

### Það sem gerist á bak við tjöldin

Það voru líka nokkuð margir fundir þessa vikuna með atvinnulífinu, samstarfsaðilum og öðrum hagsmunaaðilum til að undirbúa alls konar.

Ég held að það sjáist ekki alltaf hversu gríðarlega mikil vinna fer fram á bak við tjöldin þegar kemur að viðbragðsáætlunum, skipulagi og samskiptum. Þar koma margir að borðinu, hver með sitt hlutverk, sína þekkingu og sína ábyrgð.

Og þegar almannahagsmunir eru annars vegar eru allir með bæði belti og axlabönd.

Það er gott.

Markmiðið með góðum undirbúningi er nefnilega oft einmitt að ekkert gerist. Að búið sé að hugsa sviðsmyndirnar, ræða hver gerir hvað, tryggja samskiptin og vera tilbúin ef eitthvað fer öðruvísi en við vonum.

Úr öllum þessum samtölum stendur ein setning sérstaklega upp úr hjá mér:

> **„Það sem hefur aldrei komið fyrir mun gerast aftur.“**

Pínu mótsagnakennd við fyrstu sýn, en kannski nokkuð góð lýsing á því af hverju við undirbúum okkur.

### Peningarnir þurfa að duga

Fjárhagsáætlunargerð er líka komin á fullt og þar eru margar ákvarðanir sem þarf að taka.

Ef ég ætti að setja verkefnið upp á mannamáli þá er grunnurinn nokkurn veginn þessi:

**Óskalisti + loforð + lögbundin verkefni + nauðsynlegt viðhald = það sem við þurfum að eiga fyrir.**

Svo þarf að forgangsraða.

Mér finnst oft gott að hugsa um þetta eins og heimilisbókhaldið. Þig kann að langa mikið í nýja eldhúsinnréttingu en ef þakið byrjar að leka er líklega skynsamlegra að byrja á þakinu.

Það þýðir ekki að eldhúsinnréttingin sé slæm hugmynd. Hún færist bara neðar á listann.

Sama gildir um sveitarfélagið. Það er auðvelt að finna góð verkefni sem við viljum ráðast í. En við þurfum líka að sinna lögbundinni þjónustu, standa við skuldbindingar, halda eignum sveitarfélagsins við og bregðast við því sem einfaldlega getur ekki beðið.

Síðan kemur tekjuhliðin. Hvað höfum við úr að spila? Hvernig eiga gjaldskrár að vera? Hvar getum við hagrætt? Hvar þurfum við að bæta í? Og hvaða fjárfestingar höfum við raunverulega svigrúm til að ráðast í?

Fjárhagsáætlun snýst því ekki um að velja á milli góðra og vondra hugmynda. Oftar snýst hún um að velja á milli margra góðra og nauðsynlegra hluta og ákveða í hvaða röð við höfum efni á að gera þá.

🤷‍♀️

****Stundum þarf einfaldlega að laga þakið fyrst.**

### Og svo... ævintýri

Þegar þessi færsla fer sjálfkrafa út og er skrifuð á miðvikudegi, já, stundum er hægt að vinna sér í haginn, verð ég lent í Albaníu með eiginmanninum og góðum vinum, á leið í fjallgöngu.

Fjölskyldu og ævintýramanneskja, munið þið.

Ég er þó hjartanlega sammála eldri dóttur minni sem horfði á mig og sagði eitthvað á þessa leið:

> „...og finnst þér bara í lagi að fara til útlanda á þessum tímapunkti? Varstu ekki að byrja í nýrri vinnu? Og hvað með okkur?“

Mjög gildar spurningar.

Trúið mér, ég skipulagði þetta ekki alveg svona!

En þetta er raunveruleikinn og stundum raðast hlutirnir öðruvísi en maður hefði sjálfur kosið. Þá þarf víst bara að takast á við það og gera það besta úr því.

![](https://storage.ghost.io/c/b7/50/b750cea3-05c5-4ea2-959b-63fae3d6d9d1/content/images/2026/09/IMG_6423.JPEG)

Nýtti mér loftbrúnna til að komast yfir allt sem ég þarf að gera - geggjað að það sé í boði.

Og ég ætla að **NJÓTA**.

Það hefur verið afskaplega dýrmætt að fá að svamla um í djúpu lauginni þessar fyrstu vikur. Fá verkefnin, fólkið, spurningarnar, áskoranirnar og tækifærin yfir mig. Vera á fullu inni í þessu öllu saman.

En það er líka dýrmætt að geta stigið aðeins frá.

Fá fjallaloft í lungun, þreyta fæturna, hlæja með góðu fólki og koma svo aftur með hreinan haus.

Ævintýrin eru nefnilega ekki eitthvað sem ég ætla að geyma þangað til það verður minna að gera.

**Fjölskyldu- og ævintýramanneskja. Ég meinti það.**