> ## Content Index
> Fetch the complete content index at: https://www.hafdishuld.is/llms.txt
> Use this file to discover other available public pages before exploring further.

# Vika 5 - Olsen Olsen
- URL: https://www.hafdishuld.is/vika-5-olsen-olsen/
- Published: 2026-10-02T15:42:02.000Z
- Updated: 2026-10-02T15:43:09.000Z
- Author: Hafdís Huld Björnsdóttir

Eftir smá pásu frá dagbókinni er ég komin aftur til starfa, full af orku eftir ferð til Albaníu.

Albanía kom mér eiginlega svolítið á óvart. Náttúran er stórbrotin, fjöllin ótrúleg og sagan bæði merkileg og á köflum ótrúleg. Ég heillaðist sérstaklega af menningunni í kringum fjallahéruðin, sögunum um blóðhefnd og þeirri flóknu stjórnmálasögu sem landið hefur gengið í gegnum.

Svo voru það auðvitað raflagnirnar. Þær verðskulda eiginlega sérstaka dagbókarfærslu. Og umgengnin um náttúruna vakti líka athygli, en því miður af allt öðrum ástæðum. Rusl á stöðum þar sem maður hefði helst viljað sjá ekkert nema fjöll og fallegt landslag.

Ferðalög hafa þann kost að þau færa manni ekki bara nýja sýn á staðina sem maður heimsækir. Þau færa manni líka nýja sýn á staðinn sem maður kemur heim til.

🫶

Við megum stundum minna okkur á hversu ótrúlega gott við höfum það. Hreint umhverfi, öryggi, innviðir og samfélag sem virkar eru ekki sjálfsagðir hlutir.

![](https://storage.ghost.io/c/b7/50/b750cea3-05c5-4ea2-959b-63fae3d6d9d1/content/images/2026/10/IMG_7494.JPEG)

![](https://storage.ghost.io/c/b7/50/b750cea3-05c5-4ea2-959b-63fae3d6d9d1/content/images/2026/10/IMG_7232.JPEG)

![](https://storage.ghost.io/c/b7/50/b750cea3-05c5-4ea2-959b-63fae3d6d9d1/content/images/2026/10/IMG_7156.JPEG)

![](https://storage.ghost.io/c/b7/50/b750cea3-05c5-4ea2-959b-63fae3d6d9d1/content/images/2026/10/IMG_7199.JPEG)

## Hvað gerum við eiginlega vel?

Það var því kannski við hæfi að fyrsta heila vinnuvikan eftir heimkomu væri kjördæmavika.

Við hittum þingmenn Norðausturkjördæmis og áttum við þá gott og skilvirkt samtal. Ég var enn svolítið föst í þessari hugsun um hvað við höfum það gott og ákvað því að byrja aðeins öfugt.

Í stað þess að hefja fundinn á listanum yfir allt sem okkur vantar spurði ég:

> **„Hvað er það sem er jákvætt og gert vel á Norðurlandi, ef þið hugsið sérstaklega til Fjallabyggðar?“**

Svörin voru bæði fjölbreytt og áhugaverð.

Árangur í stærðfræði, samheldnin, íþróttafélögin, menningin, sjávarútvegurinn, Sigló Hótel, Síldarminjasafnið og öll tækifærin sem liggja í loftinu.

Og ekki síst þessi tilfinning að **við eigum mikið inni.**

Mér fannst gott að byrja þar.

Það þýðir auðvitað ekki að við höfum ekkert að ræða. Þvert á móti. Við fórum yfir meðal annars Fljótagöng, ofanflóðahættumat, skemmtiferðaskip, samgöngur, burðarþolsmat, farsældarlögin og fjölmörg önnur mál sem skipta Fjallabyggð máli.

Það er nefnilega hægt að vera stolt af því sem gengur vel og á sama tíma ákveðin í því sem þarf að gera betur.

![](https://storage.ghost.io/c/b7/50/b750cea3-05c5-4ea2-959b-63fae3d6d9d1/content/images/2026/10/--ingmenn.png)

## Smá list inn á milli

Um kvöldið mætti ég svo á listamannaspjall í Alþýðuhúsinu. Það er alltaf jafn gaman og gefandi að kíkja til Öllu Siggu.

Listamennirnir Alice Gallanagh og Kristín Elva Rögnvaldsdóttir opnuðu dyrnar, sýndu afrakstur vinnu sinnar í listamannadvölinni og buðu upp á spjall og írska tóna.

Það er eitthvað sérstaklega skemmtilegt við að sjá hvað gerist þegar fólk fær rými til að skapa.

![](https://storage.ghost.io/c/b7/50/b750cea3-05c5-4ea2-959b-63fae3d6d9d1/content/images/2026/10/lista.png)

## Samprjónið er hafið

Í vikunni átti ég líka fyrsta mánaðarlega spjallið mitt við skólastjóra Grunnskóla Fjallabyggðar ásamt sviðsstjóra velferðarsviðs.

Það sem stóð upp úr var að sjá **samprjónið sem er farið af stað.**

Það er nefnilega ýmislegt hægt að leysa þegar fólk úr ólíkum áttum sest saman, ber saman bækur sínar og byrjar að prjóna þræðina saman.

Ég hlakka mikið til að sjá afraksturinn hjá þessum öflugu og samstilltu prjónakonum.

## Olsen Olsen

Einn fundur vikunnar stóð þó sérstaklega upp úr.

Þegar ég var krakki spilaði ég iðulega Olsen Olsen við Hinna afa. Upp á peninga, meira að segja. Mamma og pabbi voru ekkert sérstaklega hrifin af þeirri uppeldisaðferð, en peningarnir fóru nú alltaf beint í baukinn sem ég átti hjá ömmu og afa.

Afi hafði líka ákveðna aðferðafræði.

Hann passaði einhvern veginn alltaf að spilið endaði þegar ég var í plús. Og oftar en ekki leyfði hann mér nú aðeins að vinna.

Sama aðferð var **alls ekki** viðhöfð hjá Steinu hans Gugga.

Þar var engin miskunn.

Ég man enn hvað hún gaf ekkert eftir og rústaði mér iðulega í spilinu.

Þess vegna þótti mér sérstaklega vænt um að fara á fund Róberts Guðfinnssonar í vikunni og byrja á því að spila við hann einn Olsen Olsen.

![](https://storage.ghost.io/c/b7/50/b750cea3-05c5-4ea2-959b-63fae3d6d9d1/content/images/2026/10/IMG_7602--1-.JPEG)

Spilið varð afskaplega langt og við þurftum bæði að hafa okkur öll við.

En það kom að því.

**Robbi vann mig.**

🤷‍♀️

Það má deila um hvort ég hafi spilað eftir reglum afa míns eða mömmu Robba. 😅

Það verður hins vegar ekki deilt um að Robbi hefur gert margt gott fyrir Fjallabyggð og miðað við spjallaði okkar heldur hann áfram að gera Siglufjörð og Fjallabyggð að einstökum stað.  
  
Kannski var það einmitt ágætis þráður inn í lok vikunnar, því þar voru fleiri samtöl um uppbyggingu og framtíðina. Ég settist niður með Segli 67 og fékk að heyra meira um það sem þar er í gangi og það er óhætt að segja að þar vanti hvorki hugmyndir né framkvæmdagleði.

Vikan endaði svo á áframhaldandi góðu samtali og samstarfi við björgunarsveitina Stráka. Það er kannski það sem stendur svolítið upp úr vikunni. Það er fullt af fólki að byggja upp, bæta við og leggja sitt af mörkum til samfélagsins, hvert á sinn hátt. Og það er ansi gott veganesti inn í framtíðina.

## Einn mánuður

Mánaðarlegt spjall sveitarstjóra á Norðurlandi eystra minnti mig svo á svolítið sem ég hafði eiginlega ekki áttað mig á.

**Það er kominn mánuður.**

Mánuður síðan ég byrjaði sem bæjarstjóri Fjallabyggðar.

Mér finnst enn eins og ég hafi byrjað í gær.

Kannski er þessi dagbók því ekki síður fyrir mig en ykkur. Hún hjálpar mér að halda aðeins utan um hvað gerðist, hverja ég hitti og hvert tíminn fór.

Og hann fer hratt.

Í vikunni áttum við líka góðan fund með sveitarfélögum á Norðurlandi um samstarf okkar í barnaverndarþjónustu. Það er bæði mikilvægt og gott að sveitarfélög sameinist um svo viðkvæma og mikilvæga þjónustu.

Svo er það auðvitað fjárhagsáætlunin.

Það virðast allir vera í svipuðum gír þessa dagana. Allir að skila inn áætlunum, verkefni eru metin og forgangsraðað og alls staðar er verið að velta fyrir sér hvernig næsta ár eigi að líta út.

Það er kannski einmitt það sem einkennir þennan tíma árs. Maður er enn á fullu að klára árið sem er í gangi en samt farinn að lifa svolítið í því næsta.

💡

Einn mánuður liðinn. Ég er enn að læra, enn að spyrja og enn að reyna að átta mig á því hvert tíminn fer.  
  
Sem betur fer skrifa ég þessa dagbók og deili með ykkur.

Góða helgi