> ## Content Index
> Fetch the complete content index at: https://www.hafdishuld.is/llms.txt
> Use this file to discover other available public pages before exploring further.

# Vika 6 - Fjármál, fjör og fatnaður
- URL: https://www.hafdishuld.is/vika-6-fjarmal-fjor-og-fatnadur/
- Published: 2026-10-09T11:24:01.000Z
- Updated: 2026-10-09T11:24:01.000Z
- Author: Hafdís Huld Björnsdóttir

Mánudagar eru stöðufundadagar hjá mér og fara að stórum hluta í samstillingu, að fara yfir stöðuna, halda utan um þræðina og passa að við séum öll að horfa í sömu átt.

Ég átti síðan skemmtilega heimsókn á Sýslumannsskrifstofuna á Siglufirði. Það var afskaplega gaman að koma þar aftur inn eftir ansi mörg ár og fá góða kynningu á þeirri fjölbreyttu starfsemi sem þar fer fram.

Við ræddum líka breytingarnar sem fram undan eru með sameiningu sýslumannsembættanna og þau tækifæri sem geta falist í þeim. Ég hef alltaf verið þeirrar skoðunar að breytingar feli í sér tækifæri, spurningin er bara hvernig við nýtum þau.

Mér finnst líka sérstaklega skemmtilegt að sjá sýslumanninn, lögregluna og Landhelgisgæsluna undir sama þaki. Það er eitthvað mjög skynsamlegt við það, sérstaklega á stað eins og Fjallabyggð þar sem nálægð, samstarf og góð nýting mannauðs getur skipt miklu máli.

![](https://storage.ghost.io/c/b7/50/b750cea3-05c5-4ea2-959b-63fae3d6d9d1/content/images/2026/10/S--sluma--urinn.png)

Fékk sparibollann á sýslumannsskrifstofunni

💡

Breytingar eru ekki bara breytingar. Þær eru líka tækifæri, ef við nýtum þær þannig.

Það var líka sérstaklega gaman að sjá **drónann góða** hjá lögreglunni.

Þetta er nefnilega miklu áhugaverðara verkefni en bara „lögreglan á dróna“. Hugmyndin er að dróni geti farið á loft við útkall, gefið yfirsýn yfir vettvang og sent upplýsingar til viðbragðsaðila áður en þeir eru sjálfir komnir á staðinn.

Í sveitarfélagi eins og Fjallabyggð, með fjöll, göng, sjó og stundum erfiðar aðstæður, er auðvelt að sjá möguleikana. Betri yfirsýn fyrr í útkalli getur skipt máli, hvort sem um er að ræða leit, náttúruhamfarir, slys, eld eða önnur verkefni.

Mér finnst líka svolítið skemmtilegt að hugsa til þess að svona nýsköpun í viðbragðsþjónustu sé meðal annars að eiga sér stað hér í Fjallabyggð.

![](https://storage.ghost.io/c/b7/50/b750cea3-05c5-4ea2-959b-63fae3d6d9d1/content/images/2026/10/H--2-.png)

Annar af drónunum góðu - einn er staðsettur á Siglufirði og annar í Ólafsfirði

> Lítið tæki. Mögulega stór áhrif.

Í framhaldinu stóðst ég síðan ekki mátið og kíkti í smá heimsókn í Olís.

Það er líka hluti af starfinu að kíkja við, hitta fólk og heyra hvað er að gerast. Ég bauð því sjálfri mér í morgunkaffi þangað við fyrsta tækifæri.

Það verður áhugavert að sjá hvort boðið stendur enn þegar ég mæti.

Sjómannadagsráð hefur síðustu ár fært stærstu styrktaraðilum Sjómannadagshátíðar viðurkenningu og þann 5\. október komu Egill Ólason og Ægir Ólafsson fyrir hönd Sjómannadagsráðs og afhentu Fjallabyggð viðurkenningu.

Það er alltaf ánægjulegt að fá viðurkenningu fyrir stuðning við viðburð sem á jafn sterkar rætur í samfélaginu okkar og Sjómannadagurinn. Tengsl Fjallabyggðar við sjóinn og sjávarútveginn eru auðvitað órjúfanleg og það skiptir máli að halda í hefðirnar og fólkið sem stendur að baki þeim. Svo það sé líka til skjalfest opinberlega þá hef ég boðað komu mína á Sjómannadagsballið í Ólafsfirði á næsta ári.

![](https://storage.ghost.io/c/b7/50/b750cea3-05c5-4ea2-959b-63fae3d6d9d1/content/images/2026/10/H--3-.png)

Ægir Ólafsson, Hafdís Huld Björnsdóttir og Egill Ólason

⚓

Sjómannadagurinn er hluti af sögu, sjálfsmynd og samfélagi Fjallabyggðar.

Svo tók við **Fjármálaráðstefna sveitarfélaganna**. Fyrir áhugasama má sjá allt um ráðstefnuna með því að [smella hér](https://www.samband.is/vidburdir/fjarmalaradstefna-2026?ref=hafdishuld.is).

Við lögðum af stað klukkan 6:30 til að ná fyrsta flugi og í þetta sinn fór ég bara í strætó. Allt gekk eins og í sögu og mér fannst eiginlega hálfgerð forréttindi að geta nýtt almenningssamgöngur svona vel, sérstaklega þegar ferðalagið byrjar í Fjallabyggð.

🚌

6:30\. Strætó. Flug. Ráðstefna. Allt gekk upp.

Og áður en lengra er haldið þarf aðeins að ræða klæðaburð.

Í kjölfar nýs hlutverks sem bæjarstjóri fékk ég nefnilega spurninguna:

„Já, og ertu ekki búin að kaupa þér dragt og svona?“

Ég er svo langt frá því að vera dragtarkonan að það er eiginlega álíka langt og ég er frá því að vera sumarkonan.

Þegar ég fékk spurninguna frussaði ég því út úr mér:

**„Aldrei í lífinu.“**

Alltof stuttu seinna var ég mætt á Fjármálaráðstefnu sveitarfélaganna, í minni fyrstu dragt.

![](https://storage.ghost.io/c/b7/50/b750cea3-05c5-4ea2-959b-63fae3d6d9d1/content/images/2026/10/IMG_7881.JPEG)

Viljið þið samt plís hnippa í mig ef þið sjáið mig einhvern tímann með hálsklút. Þá er þetta komið of langt og ég þarf aðstoð.

Miðvikudagurinn var nýttur í marga fundi í Reykjavík með alls konar fólki. Fundina er erfitt að telja upp án þess að þessi færsla breytist í fundargerð, en þeir áttu það allir sameiginlegt að snúast um að efla tengsl, opna dyr og vinna að fjölbreyttum og mikilvægum verkefnum fyrir Fjallabyggð.

Ég er sífellt að sannfærast betur um að stór hluti þessa starfs snúist einmitt um það: að tala við fólk, tengja saman fólk og verkefni og passa að Fjallabyggð sé með við borðið.

Ég mætti svo bæði á ársfund Samtaka sjávarútvegssveitarfélaga og ársfund Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga.

Ekki biðja mig að útskýra nákvæmlega hvað fór fram á þeim fundum.

En Jöfnunarsjóð get ég þó reynt að útskýra á mannamáli.

Jöfnunarsjóður er í grunninn sameiginlegur pottur sem á að hjálpa til við að jafna stöðu sveitarfélaga þannig að þau geti veitt sambærilega grunnþjónustu þótt stærð, tekjur og aðstæður séu mjög ólíkar.

Sum sveitarfélög þurfa einfaldlega að halda úti mikilli þjónustu fyrir fáa íbúa eða á erfiðu og dreifðu svæði. Þá á kerfið að hjálpa til við að jafna stöðuna.

⚖️

Jöfnunarsjóður = leið til að jafna leikinn aðeins milli sveitarfélaga.

![](https://storage.ghost.io/c/b7/50/b750cea3-05c5-4ea2-959b-63fae3d6d9d1/content/images/2026/10/Fj--rm--lar----stefna-1.png)

Eftir ársfundinn veit ég allavega töluvert meira um þetta en ég gerði þegar ég mætti.

Hvort það sé gott partýtrix verður að koma í ljós.

Og talandi um partýtrix.

Ég fékk boð í mat með **Treflinum,** sveitarfélögunum í Eyjafirði sem umvefja Akureyri. Þar sem Fjallabyggð hangir aðeins utan á þessu öllu fékk ég í þetta skiptið að vera **kögrið á Treflinum**.

![](https://storage.ghost.io/c/b7/50/b750cea3-05c5-4ea2-959b-63fae3d6d9d1/content/images/2026/10/IMG_7827.JPEG)

Mjög fallega hugsað.

Það eru þó ákveðnir aðilar í þessum hópi sem maður þarf eiginlega ekki óvini þegar maður á vini eins og þá.

Þeir buðu mér nefnilega með sér...EN þeim láðist eitthvað að nefna eitt smáatriði:

Boðið í matinn innihélt líka boð í móttöku Framsóknarflokksins.

Ég tek það því sérstaklega fram:

**Ég er ekki flokksbundin.**

En hér erum við. Ekki trúa öllu sem þið sjáið á internetinu.

![](https://storage.ghost.io/c/b7/50/b750cea3-05c5-4ea2-959b-63fae3d6d9d1/content/images/2026/10/Untitled-design.png)

Kögrið á Treflinum.  
Óflokksbundið kögur, skal tekið fram.

Svona getur maður lent í ýmsu þegar maður þiggur sakleysislegt matarboð frá "vinum sínum" með sveitarstjórnarfólki.

Ég er allavega búin að læra að næst spyr ég kannski aðeins betur hvað fylgir með.

Fjármálaráðstefnan sjálf var svo stútfull af umræðu um stöðu sveitarfélaga, efnahagsmál, velferðarþjónustu, innviði, kjaramál, stafræna þróun og auðvitað peninga.

Það er sérstakt við að vera nýlega byrjuð sem bæjarstjóri að efni sem hefði mögulega ekki haldið mér vakandi fyrir nokkrum árum er allt í einu orðið mjög áhugavert.

Innviðaskuld, fjármögnun sveitarfélaga og grá svæði í velferðarþjónustu?

Já takk.

Ég veit ekki alveg hvað varð um mig.

![](https://storage.ghost.io/c/b7/50/b750cea3-05c5-4ea2-959b-63fae3d6d9d1/content/images/2026/10/Fj--rm--lar----stefna--1--1.png)

Eitt af því sem situr eftir er hversu sambærilegar áskoranir sveitarfélaga eru, þótt þau séu mjög ólík að stærð og gerð.

Kröfurnar til þjónustunnar aukast, verkefnin verða flóknari og kostnaðurinn hækkar. Á sama tíma þurfum við að reka sveitarfélögin af ábyrgð, sinna lögbundnum verkefnum, viðhalda því sem við eigum og reyna líka að skapa rými fyrir nýjar hugmyndir og framfarir.

Það er auðvelt að finna góð verkefni til að verja peningum í.

Það er töluvert erfiðara að forgangsraða á milli þeirra.

> Það er auðvelt að finna góð verkefni. Erfiðari hlutinn er að ákveða hvað þarf að koma fyrst.

Umræðan um innviðaskuldina á sérstaklega vel við okkur í Fjallabyggð. Við eigum mikla innviði miðað við íbúafjölda, fasteignir, götur, hafnir, íþróttamannvirki og ýmis önnur mannvirki sem þarf að halda við.

Það er ekki alltaf mest spennandi verkefnið að laga það sem fyrir er. En stundum er það einfaldlega skynsamlegasta fjárfestingin.

Eins og ég hef áður sagt:

🏠

Það er takmarkað vit í að kaupa nýtt eldhús ef þakið lekur.

Það besta við svona ráðstefnur kemst þó aldrei allt á formlega dagskrá.

Það eru samtölin í kaffinu, á göngunum, við matarborðið og á milli dagskrárliða. Þar heyrir maður hvað önnur sveitarfélög eru að gera, hvað hefur gengið vel, hvað hefur gengið minna vel og kemst stundum að því að vandamálið sem maður hélt að væri alveg sérfjallabyggðískt er í raun bara mjög íslenskt sveitarfélagavandamál.

Það er bæði gagnlegt og dálítið hughreystandi.

Ég kom því heim með fullt af hugmyndum, nokkrar nýjar spurningar og það sem öllu máli skiptir enn sterkara tengslanet og vinir sem ég get hringt í ef ég lendi í vandræðum. Hitti t.d einn sveitastjóra sem er búin að vera í því hlutverki í 28 ár (ég er búin með 22 virka daga), það er gott að geta hringt í hann og svo marga aðra ef mig vantar á aðstoð.

Þessi vika var heldur betur vel heppnuð.

Nú er bara að sjá hvað fjárhagsáætlunin segir um þetta allt saman.