> ## Content Index
> Fetch the complete content index at: https://www.hafdishuld.is/llms.txt
> Use this file to discover other available public pages before exploring further.

# Vika 7 - Hvar er það þak?
- URL: https://www.hafdishuld.is/vika-7-hvar-er-thad-thak/
- Published: 2026-10-16T17:24:54.000Z
- Updated: 2026-10-16T17:24:54.000Z
- Author: Hafdís Huld Björnsdóttir

Ég var með ýmislegt á verkefnalistanum þessa vikuna. Að fylgjast með húsþökum fjúka um Siglufjörð var ekki eitt af því.

En svona er þetta víst í starfi bæjarstjóra. Maður veit nokkurn veginn hvernig dagurinn byrjar en hefur ekki alltaf hugmynd um hvernig hann endar.

Miðvikudagurinn 14\. október 2026 verður líklega lengi í minnum hafður hér í Fjallabyggð. Náttúran ákvað að minna okkur rækilega á hver ræður þegar hún tekur sig til.

## „Hvar er það þak?“

Þetta er líklega ein undarlegasta spurning sem ég hef heyrt jafn oft á einum degi.

„Hvar er það þak?“

Ekki „hvernig er veðrið?“ eða „hversu mikið er farið að fjúka?“ heldur bókstaflega: „Hvar er þakið?“

Því á miðvikudaginn var það alls ekki sjálfgefið að þökin væru enn á sömu húsum og þau tilheyrðu um morguninn.

Þakið af húsinu við Laugarveg var til dæmis komið upp á Suðurgötu. Þakið af Hvanneyrarbrautinni hafði farið yfir næsta hús, einmitt húsið sem ég hef fylgst með framkvæmdum á alveg síðan ég flutti hingað norður.

Og svo er það þakið af Ránargötunni sem endaði inni í svefnherbergi í húsi við Túngötu.

Já, inni í svefnherbergi!

Við erum vön því að hlutir fjúki til í íslensku roki. Ruslatunnur, trampólín og einstaka garðhúsgagn. En þegar heilu húsþökin fara að ferðast milli gatna erum við komin í allt annan veruleika.

Það var eitthvað svo óraunverulegt við að heyra fólk reyna að staðsetja húsþök eins og um týnda muni væri að ræða.

Auðvitað er ekkert fyndið við tjónið sem varð og hugurinn er hjá þeim sem urðu fyrir því. En stundum verða aðstæðurnar svo ótrúlegar að maður veit eiginlega ekki hvort maður eigi að hlæja eða gráta. 

![](https://storage.ghost.io/c/b7/50/b750cea3-05c5-4ea2-959b-63fae3d6d9d1/content/images/2026/10/IMG_8249.JPEG)

![](https://storage.ghost.io/c/b7/50/b750cea3-05c5-4ea2-959b-63fae3d6d9d1/content/images/2026/10/IMG_8252.JPEG)

![](https://storage.ghost.io/c/b7/50/b750cea3-05c5-4ea2-959b-63fae3d6d9d1/content/images/2026/10/IMG_8223.JPEG)

## 57 metrar á sekúndu!

Það er kannski ekki skrýtið að þökin hafi farið á flakk þegar vindhviður mældust 57 metrar á sekúndu.

**Það jafngildir rúmlega 200 kílómetra hraða á klukkustund!**

Ég held að við áttum okkur ekki öll á því hvers konar kraftar eru þarna á ferðinni.

Ímyndið ykkur bárujárnsþak á flugi í slíku veðri. Hér má til dæmis sjá bárujárnsþak sem skar sig í gegnum hús. Það var vægast sagt óhugnanleg sjón og sýnir vel hversu alvarlegar afleiðingarnar hefðu getað orðið.

![](https://storage.ghost.io/c/b7/50/b750cea3-05c5-4ea2-959b-63fae3d6d9d1/content/images/2026/10/IMG_8339.JPEG)

Bárujárnsþak inni í svefnherbergi á næsta húsi

Þök rifnuðu af húsum, lausamunir fóru á flug og eignatjón varð víða.

Það sem skiptir þó langmestu máli er að ekki fór verr.

Á bak við myndirnar af skemmdum húsum er nefnilega fólk. Fólk sem stendur nú frammi fyrir tjóni, óvissu og alls konar verkefnum sem það hafði örugglega ekki gert ráð fyrir í vikunni.

Og þótt veðrið sé gengið niður er verkefninu hvergi nærri lokið.

💡

57 metrar á sekúndu jafngilda 205,2 kílómetrum á klukkustund. Það er kraftur sem erfitt er að ímynda sér fyrr en maður sér afleiðingarnar

## Bambar, net og ótrúleg útsjónarsemi

Það sem stendur upp úr eftir þessa viku er hversu margir lögðust á eitt, bæði áður en veðrið skall á og meðan á því stóð.

Mig langar sérstaklega að hrósa verktökum bæjarins. Það hafði verið lögð gríðarleg vinna í að tryggja allt sem hægt var að tryggja, fergja lausamuni, festa niður og ganga frá. Og þegar veðrið gekk yfir hélt vinnan áfram.

Sérstakt hrós fær eigandi þessa húss og að mér skilst L7 fyrir að fergja húsið með neti degi fyrir óveðrið, virkilega vel gert.

![](https://storage.ghost.io/c/b7/50/b750cea3-05c5-4ea2-959b-63fae3d6d9d1/content/images/2026/10/IMG_8204.JPEG)

Forvarnir uppá 10 😄

Og svo voru það bambarnir!

Ég hef hreinlega ekki tölu á því hversu margir bambar (stóru plastkassar) voru fylltir af vatni til að halda niðri lausamunum og húsum.

Mér finnst eiginlega dásamlegt hvernig fólk finnur lausnir með því sem er til staðar. Ég held að bambarnir hafi sjaldan fengið jafn mikilvægt hlutverk og þessa vikuna. Netin komu líka að góðu gagni.

👏

Sérstakt hrós á líka starfsfólk þjónustumiðstöðvarinnar og tæknideildar Fjallabyggðar skilið.

Þar hefur verið unnið að mikilvægum úrbótum á fráveitukerfinu og sá undirbúningur skipti máli þegar á reyndi. Ekki síður skiptu viðbrögðin á staðnum miklu máli. Við munum mörg hver eftir stöðunni sem var uppi 2024\. Þrátt fyrir gríðarlega háa sjávarstöðu sem fylgdi lægðinni í þetta skiptið þá stóðum við ekki í sömu sporum. Það gerðist ekki af sjálfu sér.

Fráveitan er kannski ekki fyrsta umræðuefnið yfir kaffibolla, en hún verður ansi mikilvæg þegar reynir á.

Þetta er einmitt eitt af því sem mér finnst áhugavert við sveitarfélög. Ótrúlega margt þarf að virka svo við getum lifað okkar daglega lífi án þess að hugsa sérstaklega út í það.

Og á bak við allt þetta er fólk sem kann sitt fag, þekkir kerfin og veit hvað þarf að gera.

![](https://storage.ghost.io/c/b7/50/b750cea3-05c5-4ea2-959b-63fae3d6d9d1/content/images/2026/10/IMG_8240.JPEG)

Verið að fylla á bamba og einkaaðilar í bænum að flytja þá á þarfa staði - Takk!

## Og svo var það höfnin!

Eins og það væri ekki nóg að hafa húsþök á flugi um bæinn, þá var ástandið við höfnina ekki síður sérstakt.

Sjávarstaðan var gríðarlega há og þegar saman fara mikil lægð, áhlaðandi og hvassviðri geta skapast ansi krefjandi aðstæður við höfnina.

Hafnarvörður ásamt fleirum þurftu að huga að bátum, landfestum og öryggi hafnarmannvirkja. Og svo var það seglskútan!

Það var því ekki bara á landi sem þurfti að hafa augun opin. Á meðan þökin voru á ferðinni um bæinn þurfti líka að fylgjast vel með því sem gerðist á sjónum.

Ég held að þetta sýni ágætlega hversu margþætt svona verkefni er. Það er ekki nóg að hugsa um húsin, göturnar og fráveituna. Það þarf líka að tryggja hafnarsvæðið og sinna öllum þeim verkefnum sem skapast þegar náttúruöflin láta til sín taka.

![](https://storage.ghost.io/c/b7/50/b750cea3-05c5-4ea2-959b-63fae3d6d9d1/content/images/2026/10/IMG_4566.JPEG)

## Þegar öll hjólin fara að snúast

Eitt af því sem mér fannst hvað magnaðast þessa vikuna var að fá að fylgjast með vettvangsstjórninni að störfum. Hvernig lögregla, slökkvilið, björgunarsveitir og tæknideild Fjallabyggðar unnu saman á einstakan hátt við að stýra aðgerðum.

Ég hef í gegnum tíðina unnið mikið með skipulag, verkefnastjórnun og samhæfingu, en það er alveg sérstök upplifun að sjá viðbragðskerfi af þessari stærðargráðu fara í fulla virkni.

Að fylgjast með því hvernig upplýsingum var miðlað, verkefnum forgangsraðað og ákvarðanir teknar á meðan aðstæður breyttust stöðugt.

Það var eiginlega stórkostlegt að sjá hvernig öll hjólin fóru að snúast. Hver og einn hafði sitt hlutverk, ólíkir aðilar unnu saman og allir lögðust á eitt við að leysa þau verkefni sem komu upp.

Það sem heillaði mig einna mest var hversu fumlaus og yfirveguð vinnubrögðin voru þrátt fyrir að aðstæður væru allt annað en rólegar.

Ég hef oft talað um mikilvægi skýrra hlutverka, góðs samstarfs og þess að vera vel undirbúin. Þarna fékk ég að sjá nákvæmlega hvers vegna þetta skiptir svona miklu máli.

Það er nefnilega eitt að hafa gott viðbragðskerfi á blaði. Það er annað að sjá það lifna við þegar virkilega reynir á.

Ég kom frá þessari reynslu bæði fróðari og full af aðdáun á fólkinu sem stendur á bak við kerfið.

## Kerfið er samansafn af fólki

Það er auðvelt að tala um viðbragðskerfi, verklag og skipulag. En þegar öllu er á botninn hvolft er kerfið ekkert annað en fólkið sem stendur á bak við það.

Og þvílíkt fólk sem við eigum!

Björgunarsveitin Strákar á Siglufirði, Tindar í Ólafsfirði og björgunarsveitarfólk frá Dalvík og Akureyri stóðu í ströngu ásamt slökkviliði, lögreglu, verktökum og starfsfólki Fjallabyggðar. Fólk sem vann við erfiðar og hættulegar aðstæður til að tryggja öryggi annarra og koma í veg fyrir frekara tjón.

Það er magnað að hugsa til þess að stór hluti þessa starfs byggir á sjálfboðaliðum. Fólki sem leggur frá sér það sem það er að gera, kveður fjölskylduna og mætir þegar kallið kemur. Það er ekkert sjálfgefið við það.

En það voru líka ótal önnur verkefni sem þurfti að sinna.

Slysavarnardeildin Vörn tók til dæmis að sér að sjá til þess að björgunarsveitarfólkið fengi eitthvað í svanginn. Því þótt maður geti unnið kraftaverk í skærgulum galla þarf maður víst líka að borða!

Aðalbakaríið lagði til bakkelsi og Kjörbúðin veitti rausnarlegan afslátt af innkaupunum. Svona framlög kunna að virðast lítil í stóra samhenginu, en þau skipta máli. Þau sýna líka hversu margir geta lagt sitt af mörkum, hver með sínum hætti.

Svo má auðvitað ekki gleyma nágrönnunum, vinunum og öllu fólkinu sem bauð fram aðstoð, hjálpaði til við að tryggja eignir eða lét sig einfaldlega varða hvernig öðrum leið.

Mér fannst sérstaklega fallegt að sjá hvernig samfélagið allt virtist leggjast á eitt. Hver og einn fann sitt hlutverk og saman tókst fólki á við aðstæður sem enginn hefði kosið sér.

**Samheldni er nefnilega ekki bara fallegt orð sem við notum þegar við tölum um kosti þess að búa í litlu samfélagi. Hún er eitthvað sem við gerum.**

Og þessa vikuna sáum við hana svo sannarlega í verki.

![](https://storage.ghost.io/c/b7/50/b750cea3-05c5-4ea2-959b-63fae3d6d9d1/content/images/2026/10/IMG_8274--1-.JPEG)

## Þegar vindinn lægir

Þótt veðrið sé gengið niður er ljóst að afleiðingarnar munu fylgja okkur áfram.

Nú tekur við hreinsunarstarf, tjónamat, viðgerðir og ekki síst það verkefni að styðja við fólk sem hefur orðið fyrir tjóni.

Það þarf líka að fara yfir atburðarásina og skoða hvað gekk vel og hvað við getum gert betur. Þar koma meðal annars til skoðunar veðurmælingar, viðvaranir, upplýsingamiðlun og viðbúnaður.

Ég er þeirrar skoðunar að við eigum alltaf að nýta svona reynslu til að læra og bæta okkur. Ekki til að finna sökudólga heldur til að tryggja að við séum eins vel undirbúin og mögulegt er næst þegar náttúran lætur til sín taka.

Við getum ekki stjórnað veðrinu. En við getum haft áhrif á það hvernig við undirbúum okkur og bregðumst við.

## Kraftur, reynsla og góð ráð

Á fimmtudaginn fór ég og hitti Félag eldri borgara á Ólafsfirði. Og þvílík skemmtileg og gefandi stund!

Þarna var saman kominn einstaklega öflugur hópur og það vantaði hvorki kraftinn, skoðanirnar né góðu ráðin.

Ég hef alltaf lagt áherslu á að nálgast verkefni út frá tveimur spurningum: **Hvað er vel gert og hvað má betur fara?** Svo er ég líka þeirrar skoðunar að það sé bannað að tuða nema koma með tillögu að lausn! 😅

Og það skorti svo sannarlega ekki hugmyndirnar á þessum fundi.

Það situr enn setning í mér sem ég sá í Albanínu og vert er að hafa í huga:

💡

****„Sá sem gleymir fortíðinni er dæmdur til þess að endurlifa hana.“**

Það er nefnilega engin ástæða til að finna alltaf upp hjólið, hvað þá að gera sömu mistökin aftur og aftur. Reynslan er ómetanleg og við eigum að nýta hana.

Margt gott er að gerast í málefnum eldri borgara í Fjallabyggð og ég kom af fundinum töluvert fróðari, með fullt af góðum ráðum og skýrari mynd af því hvað skiptir eldra fólk í Fjallabyggð mestu máli.

**Kærar þakkir fyrir kraftinn, hreinskilnina og öll góðu ráðin!**

![](https://storage.ghost.io/c/b7/50/b750cea3-05c5-4ea2-959b-63fae3d6d9d1/content/images/2026/10/IMG_8314.JPEG)

Félag eldri borgara í Ólafsfirði

![](https://storage.ghost.io/c/b7/50/b750cea3-05c5-4ea2-959b-63fae3d6d9d1/content/images/2026/10/IMG_8318.JPEG)

Mikið var þetta kærkomið eftir óveðrið

## Landsvirkjun, hamborgarar og hátíðleg athöfn

Svo áttaði ég mig á því að ég gleymdi alveg að segja frá einni heimsókn í síðustu viku!

Landsvirkjun ákvað nefnilega að halda starfsdag á Siglufirði, það er viðskiptastýring, deildin hans Bjarna.

Hópurinn gisti á Hótel Sigló og fór svo upp í Grillhyttuna þar sem þau grilluðu sér hamborgara.

Ég verð að segja að mér finnst þetta ansi góð nýting á því sem Siglufjörður hefur upp á að bjóða!

Þar sem ég var fjarverandi þurfti ég að finna einhvern til að taka á móti hópnum við hátíðlega athöfn. Og hver væri betur til þess fallin en Anna Lind hjá SSNE?

Anna Lind er nefnilega ein af þessum manneskjum sem eru svo frábærir fulltrúar samfélagsins að maður fær sjálfur löngun til að flytja þangað!

Og ég get alveg viðurkennt að hún á stóran þátt í því að mig langaði aftur heim í Fjallabyggð. Hún hefur greinilega staðið sig svo vel í landkynningunni að nú er ég flutt hingað með alla fjölskylduna. 😅

Það er því óhætt að segja að hópurinn hafi verið í góðum höndum. Takk fyrir að hlaupa í skarðið, Anna Lind! ❤️

Það er alltaf gaman þegar fyrirtæki velja að halda starfsdaga og viðburði hér hjá okkur. Við höfum frábæra aðstöðu, einstakt umhverfi og ótal möguleika þegar kemur að því að taka á móti hópum.

Og ef deildin hans Bjarna þarf að halda fleiri starfsdaga á Siglufirði ætla ég nú ekkert að standa í vegi fyrir því. 😉  

![](https://storage.ghost.io/c/b7/50/b750cea3-05c5-4ea2-959b-63fae3d6d9d1/content/images/2026/10/23050e1f-6122-4e1d-814c-f16ff168d122.jpg)

Viðskiptastýring Landsvirkjunnar

## Vindmælavaktin er mönnuð!

Þessi vika hefur sannarlega kennt mér ýmislegt. Hversu mikilvægt það er að vera vel undirbúin, hversu mikið við eigum undir öflugu fólki og hversu dýrmætt það er að hlusta á reynslu þeirra sem hafa gengið veginn á undan okkur.

Ég vil senda hlýjar kveðjur til þeirra sem urðu fyrir tjóni í óveðrinu og færa öllum sem komu að undirbúningi, viðbrögðum og aðstoð innilegar þakkir.

En áður en ég kveð er eitt mál sem ég verð að nefna.

Vindmælingar á Siglufirði.

Eitt af því sem við þurfum að skoða í kjölfar óveðursins er hvernig við tryggjum betri upplýsingar um vind í byggð. Það er nefnilega töluverður munur á því að vita að það sé rok einhvers staðar og að vita hvað er raunverulega að gerast í bænum sjálfum.

Þangað til komið verður fyrir vindmæli í byggð hefur Bjarni því verið settur á tímabundna vindmælavakt.

Við hjónin eigum nefnilega vindmæli!

Launakjörin hafa ekki verið rædd sérstaklega, vinnutíminn ræðst af veðri og starfsaðstaðan er utandyra.

Ég vona samt innilega að það dragist ekki of lengi að koma upp varanlegum mæli.

Bjarni er nefnilega í annari vinnu og ég er ekki alveg viss um að hann hafi gert ráð fyrir þessu aukahlutverki þegar hann flutti með mér norður. 😅

![](https://storage.ghost.io/c/b7/50/b750cea3-05c5-4ea2-959b-63fae3d6d9d1/content/images/2026/10/42589378-0b62-4a2d-b127-2625f80fa3ba.jpg)

Bjarni með vindmælinn góða

Góða helgi og farið vel með hvert annað. ❤️