Um Hafdísi Huld

Um Hafdísi Huld

Ég heiti Hafdís Huld og tek við starfi bæjarstjóra Fjallabyggðar 1. september 2026.

Fyrst og fremst er ég mikil fjölskyldu- og ævintýramanneskja. Ég er gift Bjarna Eyfjörð Friðrikssyni og saman eigum við tvær dætur, Elísu Eyfjörð (2012) og Öglu Eyfjörð (2016). Ég elska ævintýri og að vera úti í náttúrunni.

Ég hef mikinn áhuga á fólki, samfélögum og því hvernig hugmyndir verða að verkefnum og verkefni að raunverulegum breytingum. Í störfum mínum hef ég meðal annars fengist við stefnumótun, verkefnastjórnun, vinnustofur og samstarf með alls konar fólki.

Nú tekur við nýr kafli í Fjallabyggð.

Þessi síða er mín persónulega dagbók úr þeim kafla. Hér ætla ég að segja frá því sem drífur á daga mína, fólkinu sem ég hitti, stöðunum sem ég heimsæki, verkefnum sem ég fæ að kynnast og ýmsu öðru sem verður á vegi mínum.

Hugmyndin er einföld. Mig langar að opna örlitla glufu inn í hversdaginn og gefa þeim sem hafa áhuga tækifæri til að fylgjast með lífinu og starfinu í Fjallabyggð frá mínu sjónarhorni.

Ég stefni á að setja inn nýja færslu á hverjum föstudegi. Sumar verða um stóra daga, aðrar um litlu hlutina og líklega verða einhverjar einfaldlega um það sem vakti athygli mína þá vikuna.

Fólk, fundir og fjallaloft. Úr lífinu í Fjallabyggð.


Um þessa síðu

hafdishuld.is er persónuleg síða mín og ég ber ábyrgð á því efni sem ég birti hér. Skoðanir, vangaveltur og frásagnir á síðunni eru settar fram af mér sjálfri og síðan er ekki formleg upplýsingaveita Fjallabyggðar.

Formlegar upplýsingar um stjórnsýslu sveitarfélagsins, fundargerðir, ákvarðanir og opinber gögn er að finna á fjallabyggd.is.

Eins fyrir áhugasama þá býr Fjallabyggð að öflugum staðbundnum fréttamiðlum, meðal annars Héðinsfjörður.is og Trölli.is, sem segja frá því sem er að gerast í samfélaginu. Þessi síða er ekki fréttamiðill heldur mín persónulega dagbók.

Þegar ég fjalla um fólk, vinnustaði eða samfélagið almennt mun ég leitast við að gæta að friðhelgi fólks og birta ekki upplýsingar sem eiga ekki erindi í opinbera umræðu.