Vika 2 - Þurfum ekki alltaf að finna upp hjólið.
Það er svolítið merkilegt hvað ein vika getur innihaldið mikið af ólíkum hlutum. Jarðgöng, skíðasvæði, rafmagn, fjármál, fyrirtækjaheimsóknir, málefni eldra fólks, óformlegt spjall við lögregluna, gulur dagur, óvæntur ís og einn ansi góður drykkur.
Þegar ég horfi yfir vikuna sé ég samt nokkuð skýran rauðan þráð: samskipti, samvinna og forgangsröðun.
72 mánuðir í tjaldi
Helgin byrjaði þó á allt öðru. Ég náði nefnilega sex ára áfanga í mánaðarlegum útilegum. Í sex ár hef ég farið í að minnsta kosti eina útilegu í hverjum einasta mánuði, í sól, snjó, roki og rigningu og á alls konar stöðum.
Það var sérstaklega gaman að taka sex ára útileguna á Ólafsfirði og enn tekst mér að upplifa eitthvað nýtt. Ég hafði til dæmis aldrei áður tjaldað við hliðina á skíðastökkpalli.
Fortíðin læddist svo óvænt að mér um nóttina. Þegar ég var yngri voru allar stelpurnar á Ólafsfirði hrifnar af sama stráknum. Eitt sinn var ég svo ótrúlega heppin að hann labbaði heim með mér úr skólanum, einmitt yfir túnið þar sem tjaldsvæðið er núna. Þegar við vorum komin heim horfði hann á mig og spurði:
„Af hverju ertu með hjálm á hausnum?“
Þá rann upp fyrir mér að ég hafði steingleymt hjólinu mínu í skólanum.
Það varð ekkert úr þeirri ástarsögu.
Það var því einstaklega viðeigandi að vakna, mörgum árum síðar, í tjaldi á nákvæmlega sama túni við það að nokkrir púkar, nýkomnir af barnum með hjálma á hausnum, læddust að mér og vöktu mig.
Sumt eltir mann greinilega lengur en annað. 😂

Annars fær tjaldsvæðið á Ólafsfirði fullt hús stiga hjá mér. Geggjað tjaldsvæði, frábær staðsetning og sundlaugin nánast við tjalddyrnar. Ég hlakka strax til að tjalda þarna aftur og næst ætla ég að muna eftir sundinu.
Sunnudagurinn fór svo í fjölskylduknús áður en önnur tegund af viku tók við.
Stór verkefni eru líka fullt af litlum verkefnum
Mikil vinna hefur verið í kringum Fljótagöng og það er einstaklega ánægjulegt að sjá að stefnt sé að því að framkvæmdir hefjist í haust. Því ber svo sannarlega að fagna.
Það fylgir því heilmikil vinna að undirbúa jarðgöng og ótrúlega mörg verkefni þarf að leysa áður en stóru framkvæmdirnar sjálfar hefjast. Við þökkum bara fyrir þau verkefni og tökumst á við þau saman.
Við fylgjumst líka vel með áformum ríkisins og hvað þau þýða fyrir okkur. Ákvarðanir þar hafa áhrif á þær forsendur sem við vinnum með við gerð fjárhagsáætlunar Fjallabyggðar, gjaldskrár og forgangsröðun næstu ára.
Á sama tíma bætast ný verkefni við. Bæjarráð hefur ákveðið að Fjallabyggð sjái um rekstur skíðasvæðisins í vetur og því fylgja ýmis verkefni.
Ég er farin að læra að setningin „því fylgja ýmis verkefni“ getur þýtt ansi margt í sveitarfélagi.
Sem betur fer snýst lífið á bæjarskrifstofunni ekki eingöngu um stóru málin. Siggi Hlöðvers birtist til dæmis með ís í vikunni. Hann var kærkominn. Mjög kærkominn.
Eins var gulur dagur, sem var að sjálfsögðu tekinn hátíðlega á bæjarskrifstofunni. Mætt var í gulu og ég áttaði mig á því að mig vantar mögulega sýnileikafatnað merktan „Bæjarstjóri“. Þá á ég að minnsta kosti pottþétt dress fyrir næsta gula dag.
Ég hitti líka stelpu frá Mexíkó sem var að eiga yndislegan tíma á ferðalagi um landið. Sagði henni frá helstu stöðunum sem mikilvægt væri að skoða og benti henni að sjálfsögðu á Myndasöguhátíð Siglufjarðar sem er hér um næstu helgi.

Ekki finna upp hjólið
Á Haustþingi SSNE varð þessi rauði þráður vikunnar enn skýrari. Það sem sat mest eftir hjá mér var mikilvægi þess að sveitarfélög deili þekkingu og reynslu. Við erum mörg að glíma við sömu eða svipuð verkefni og einhver hinum megin við fjallið gæti þegar verið búinn að finna lausnina á vandamálinu sem við erum að glíma við.
Við þurfum ekki alltaf að finna upp hjólið. Stundum getum við bara borað göng og fengið það lánað.
Það er ótrúlega mikilvægt að styrkja tengslin, þekkja fólkið og vita í hvern maður getur hringt. Eftir þingið fórum við í heimsókn í Sæplast, fengum að kynnast mögnuðu fyrirtæki og enduðum svo daginn á dýrindiskvöldverði og góðri samveru.
Á þinginu gerðist líka svolítið sem mér þótti sérstaklega vænt um. Ég skrifaði undir minn fyrsta samning sem bæjarstjóri.
Sveitarfélögin á Norðurlandi eystra gerðu samstarfssamning við Bergið Headspace um aukinn stuðning og ráðgjöf fyrir ungmenni á svæðinu. Ég hefði varla getað óskað mér betri fyrsta samnings til að skrifa undir og er einstaklega stolt af honum.

Ég hef nokkrum sinnum hugsað síðan ég tók við: „Ég lít nú ekki beint út eins og bæjarstjóri.“
Ég veit svo sem ekki alveg hvernig bæjarstjóri á að líta út, en svo sá ég þessa mynd frá Haustþingi SSNE og hugsaði að mögulega væri undirmeðvitundin bara búin að búa sér til ákveðna staðalmynd. 😂

Kannski lít ég bara alveg nákvæmlega út eins og bæjarstjóri.
Við þurfum bara aðeins að uppfæra myndina í hausnum á okkur af því hvernig bæjarstjóri lítur út. Ég vil líka að dætur mínar viti að þær geti verið og orðið nákvæmlega það sem þær vilja.
Samskipti, skipulag og stuð
Sami rauði þráður hélt áfram á fundi með RARIK ásamt Dalvíkurbyggð. Þar mættu stjórn, forstjóri og heljarinnar sendinefnd en mitt markmið var skýrt, með eina "einfalda" spurningu og tilbúin að benda frá mér á einhverja stofnun.
Eins og svo oft áður reyndist málið hafa margar hliðar. Það snýst meðal annars um fjárfestingar, forgangsröðun, væntingar og hvernig við viljum byggja kerfið upp til framtíðar. Það sem ég tók helst með mér var mikilvægi samtalsins og skipulagsins. Þegar sveitarfélagið er hvort sem er að fara í framkvæmdir og opna götur þurfum við að eiga samtalið tímanlega og skoða hvað hægt er að gera samhliða.
Aftur vorum við komin að samskiptum, samvinnu og skipulagi.
Fundurinn var góður og gagnlegur og RARIK á hrós skilið fyrir að standa að honum.
Lögreglan kíkti líka í óformlegt spjall til mín á skrifstofuna. Það er mikilvægt að eiga gott samtal og vera á sömu blaðsíðu, sérstaklega þegar kemur að öryggi og þeim verkefnum sem við þurfum að takast á við saman.

Skemmtileg stjórnsýsla. Já, ég sagði það.
Ég kíkti líka á Skiltagerð Norðurlands og fékk að skoða græjurnar, heyra sögu fyrirtækisins og kynnast starfseminni. Mér finnst alltaf gaman að komast inn í fyrirtæki, sjá hvað fólk er að gera og hvernig hlutirnir verða til.
Ég fór þaðan líka með nokkra góða punkta um stjórnsýsluna okkar og hvernig við getum gert hana enn heilbrigðari, skilvirkari og já, skemmtilegri.
Skemmtileg stjórnsýsla. Mér finnst þessi orð alveg mega fara saman.

Ef þið bara vissuð
Það var búið að gauka að mér að góð hugmynd væri að kíkja á Hornbrekku um þrjúleytið þegar allir væru í kaffi. Ég var í nágrenninu og stökk inn. Þar var einstaklega huggulegt og notalegt og gaman að sjá hvað fólkið var ánægt. Ég fékk svo boð um að kíkja á Skálahlíð og náði því í beinu framhaldi.
Í annarri heimsókninni fékk ég komment sem sat í mér:
„Gaman að þú skulir sýna málefnum eldra fólks áhuga.“
Ef þið bara vissuð.
Málefni eldra fólks hafa lengi átt stóran stað í hjarta mínu. Kannski af því að ég hef alltaf verið mikil ömmu og afastelpa, en líka vegna þess að mér finnst mikilvægt að við berum virðingu fyrir því sem var og gleymum aldrei hverjir byggðu upp samfélagið og lífsgæðin sem við búum við í dag.
Síðustu ár hef ég fengið að vinna mikið að málefnum öldrunar, meðal annars að uppbyggingu lífsgæðakjarna t.d Sléttunnar, uppbyggingaráætlun DAS, Degi öldrunar og svo mörgu öðru. Áhuginn er því langt frá því að vera nýtilkominn.
Þetta er fólkið sem byggði upp samfélagið sem við fáum nú að halda áfram að byggja.
Öll lífsins gæði
Þegar ég horfi yfir vikuna er rauði þráðurinn kannski einfaldari en öll þessi ólíku verkefni gefa til kynna. Við komumst lengra þegar við tölum saman, deilum þekkingu, hlustum hvert á annað, tengjum saman fólk og verkefni og forgangsröðum vel.
Vikan endaði svo á drykk á Segli 67. Eftir jarðgöng, fjármál, rafmagn, skíðasvæði, fundi, fyrirtækjaheimsóknir, gulan dag og kærkominn ís frá Sigga var ágætt að setjast einfaldlega niður og njóta.
Það eru sko öll lífsins gæði í Fjallabyggð. ❤️