Vika 11 - Trefillinn, tölvupóstur og stórhríð

Vika 11 - Trefillinn, tölvupóstur og stórhríð
Treflar út um allt

Það er farið að jóla í Fjallabyggð. Jólabjórinn er kominn og ég kíkti í tilefni þess á barinn hjá Hrólfi sem mér skilst að hafi verið einstök opnun enda ekki opið þar á hverjum degi.

Trefill ársins 2026

Um síðusu helgi fengum við heldur betur skemmtilega heimsókn þegar Trefillinn mætti til Fjallabyggðar.

Fyrir þau sem ekki þekkja til þá er Trefillinn samstarf sveitarfélaganna sem umvefja Akureyri. Það eru Grýtubakkahreppur, Svalbarðsstrandarhreppur, Eyjafjarðarsveit og Hörgársveit.

Þessi sveitarfélög eiga margt sameiginlegt og það er greinilega mikill kraftur í samstarfinu. Ég er ekki frá því að það sé bara ansi gaman að starfa í sveitarstjórnarmálum á þessum slóðum.

Alls mættu um 70 manns til Siglufjarðar. Sveitarstjórnarfólk, sveitarstjórar, starfsfólk sveitarfélaganna og makar. Þau hófu daginn í ráðhúsinu þar sem ég tók á móti þeim og sagði þeim frá Fjallabyggð og fyrstu skrefunum mínum í starfi bæjarstjóra.

Svo fékk ég auðvitað minn besta mann, Bjarna, til liðs við mig. Hann ræddi meðal annars um hvernig það er að vera maki bæjarstjóra, gervigreind og tækifærin sem felast í raforkumálum á Eyjafjarðarsvæðinu. Það er nefnilega ýmislegt hægt að ræða þegar þessi hópur kemur saman!

En svo gerðist nokkuð sem ég átti alls ekki von á.

Ég hlaut viðurkenninguna Trefill ársins 2026!

Og ég er bara ótrúlega stolt og þakklát með það.

Það sem mér þykir þó vænst um er sá stuðningur sem ég hef fundið frá sveitarstjórunum í Teflinum. Þarna er fólk með mikla reynslu sem hefur tekið mér afskaplega vel og verið ófeimið við að miðla af þekkingu sinni og reynslu.

Það er ómetanlegt fyrir nýjan bæjarstjóra að finna slíkan stuðning.

Og kannski er það einmitt það sem góður trefill á að gera. Halda á manni hita þegar eitthvað blæs á móti. ❤️

Trefillinn með treflinum og Trefli ársins 2026 😄
Það var þétt setið í ráðhúsinu

Í framhaldinu fór þau á Síldarminjasafnið, fengu kynningu frá Genís og Sigló veitingum ásamt því að fá yfirlit yfir fasteignamarkaðinn í Fjallabyggð. Kíktu líka við hjá Segli 67 í höfðinglegar móttökur. Kvöldið endaði síðan á Hannes Boy í mikilli veislu þar sem Kiddi og Danni héldu upp stuðinu.
Embætti Skipulags- og byggingarfulltrúa Eyjafjarðar skemmtu líka hópnum með lagi um skipulagsmál (það getur ekki klikkað).

Það er auðveldara að segja já

Hvað skal svo segja um þessa vinnuviku?

FJÁRHAGSÁÆTLUN.

Það er eiginlega hægt að draga ansi stóran hluta vikunnar saman í þetta eina orð.

Fjárhagsáætlunarvinna er nefnilega miklu umfangsmeiri en flestir gera sér grein fyrir. Það þarf að fara yfir ótal verkefni, skoða tölur, meta þarfir, forgangsraða og reyna að sjá fyrir hvernig næsta ár mun líta út.

Og það vantar svo sannarlega ekki verkefnin.

Það er svo margt sem mann langar að gera, bæta og byggja upp. En það er miklu auðveldara að segja „já, gerum það!“ heldur en að segja „nei, þetta þarf því miður að bíða“.

En það er einmitt hluti af ábyrgðinni. Að geta tekið ákvarðanir sem eru kannski ekki þær skemmtilegustu í dag en eru skynsamlegar til lengri tíma.

Ég tók afskaplega fáar myndir þessa vikuna. Það er enda takmarkað hversu spennandi ljósmyndaefni fjárhagsáætlunarvinna er. Excel skjöl, fundarherbergi og kaffibollar eru kannski ekki alveg það sem fær fólk til að stoppa við á samfélagsmiðlum.

Ég ætla því frekar að leyfa fallegum himni yfir Fjallabyggð og þakinu á Tónlistarskólanum að njóta sín.

Elska þakið á Tónskólanum - það gleður

Microsoft bjargaði föstudeginum

Eða það fer reyndar eftir því hvernig á það er litið.

Microsoft ákvað að gera föstudaginn aðeins öðruvísi og tölvupósturinn hefur ekki alveg verið að haga sér eins og hann á að gera.

Einu sinni voru sjónvarpslausir fimmtudagar. Kannski er kominn tími til að taka upp tölvupóstlausa föstudaga?

Ég verð að viðurkenna að það er eiginlega bara afskaplega næs.

Í bili.

Þangað til allt hellist yfir mann aftur og maður áttar sig á því að tölvupóstarnir hurfu ekkert. Þeir biðu bara þolinmóðir eftir því að maður kæmi aftur.

Það sem skiptir mestu máli

Þótt fjárhagsáætlunin hafi tekið mikið pláss í vikunni var hápunkturinn þó af allt öðrum toga.

Lítil frænka sem mér þykir afskaplega vænt um átti afmæli. ❤️

Og þótt verkefnin séu mörg og dagatalið þéttskipað er gott að minna sig á að mikilvægustu stundirnar eru ekki alltaf þær sem rata inn á vinnudagatalið.

Pakki til litlu frænku - öll fjölskyldan saman

Föstudagurinn þrettándi stendur undir nafni

Í kvöld ætluðum við starfsfólkið í ráðhúsinu að gera okkur glaðan dag og eiga notalega stund saman á Hvanndölum í Ólafsfirði.

En veðrið hafði greinilega önnur plön!

Það er nefnilega spáð alvöru stórhríð og því var tekin sú skynsamlega ákvörðun að fresta jólahlaðborðinu. Betra að bíða aðeins með jólasteikina en að þurfa að skipuleggja björgunarleiðangur yfir okkur.

Og svo er auðvitað föstudagurinn þrettándi!

En 13 hefur alltaf verið happatala í fjölskyldunni minni. Sú hefð kemur frá ömmu Hafdísi og ég hef haldið fast í hana síðan. Ég hef því aldrei skilið almennilega þessa hjátrú í kringum dagsetninguna.

Miðað við að Microsoft tók af okkur tölvupóstinn og veðrið tók af okkur jólahlaðborðið, þá er þó ljóst að föstudagurinn þrettándi ætlar ekki að láta fara lítið fyrir sér.

Ég kýs samt að líta á björtu hliðarnar. Ég fæ rólegri föstudag, jólahlaðborðið er enn tilhlökkunarefni og ég þarf ekki að pakka tannbursta fyrir kvöldið.

Amma Hafdís vissi greinilega hvað hún var að gera þegar hún valdi sér happatölu.

Góða helgi og farið varlega í veðrinu! ❤️