Vika 10 - Leynifundir, jólapappír og önnur alvarleg bæjarmál

Vika 10 - Leynifundir, jólapappír og önnur alvarleg bæjarmál
Einar Valsson skipherra Freyju ásamt bæjarstjóra og bæjarfulltrúum

Það er ýmislegt sem maður sér ekki fyrir þegar maður ræður sig sem bæjarstjóra. Til dæmis að þurfa mögulega að fjárfesta í svörtum frakka og hatti, endurskoða röðun áhugamála sinna og fylgjast með áhöfn varðskips skoða jólapappír á Temu.

En svona er nú lífið í Fjallabyggð. Það er allavega sjaldan leiðinlegt!

Loforðatímabilinu formlega lokið

Síðasta helgi fór í hrekkjavöku í Reykjavík og þar með lauk formlega því sem ég hef kallað loforðatímabilið. Fyrir flutningana norður voru nefnilega gefin ýmis loforð um Reykjavíkurferðir til að auðvelda yngri kynslóðinni að sætta sig við að flytja norður.

Nú er búið að efna þau öll og ég held að það sé óhætt að segja að aðlögunin gangi vel.

Við erum meira að segja farin að horfa í kringum okkur eftir framtíðarhúsnæði. Hvar við endum veit enginn enn þá, allra síst við sjálf. En það verður spennandi að sjá hvernig það fer.

Og ég veit að sumir eru ekki síður spenntir en við. 😉

Hefðbundin bæjarmál og ný áhugamál

Vikan í ráðhúsinu hefur verið nokkuð hefðbundin. Stöðufundir, upplýsingamiðlun, úrlausn mála og samtöl um það sem brennur á hverju sinni. Þar má nefna málefni sambýlisins, löndunarkrana í höfninni og fund með lögfræðingi sveitarfélagsins.

Það er auðvitað aðeins brot af því sem fer fram á venjulegri vinnuviku, en það er svo sannarlega enginn skortur á verkefnum.

Golfið átti síðan stóran sess í vikunni, hitti Golfklúbb Siglufjarðar og kíkti í heimsókninn á völlinn hjá Golfklúbbi Fjallabyggðar.

Ég hef lengi haldið því fram að þegar ég verði búin að fá nóg af fjallgöngum og útivist taki laxveiðin við sem næsta áhugamál. Golfið kæmi svo þar á eftir.

Eftir þessa fundi er ég hins vegar farin að efast um þessa forgangsröðun.

Ég hef reyndar komið á golfvöllinn í Ólafsfirði og læt eina góða mynd fylgja til sönnunar. Það verður þó að viðurkennast að ég var á gönguskíðum í það skiptið.

En einhvers staðar verður maður að byrja!

Ónefnd siglfirsk vinkona á gönguskíðum með mér í Ólafsfirði 😄
Össs litla græjan til að slá golfvöllinn í Ólafsfirði

Fimm ár af Freyju á Siglufirði

Í dag, 6. nóvember, eru nákvæmlega fimm ár síðan varðskipið Freyja lagðist fyrst að bryggju á Siglufirði, þar sem það hefur heimahöfn.

Af því tilefni bauð Einar Valsson skipherra okkur bæjarfulltrúunum í heimsókn um borð. Við fengum góða skoðunarferð og kynningu á starfseminni.

Það er mikilvægt fyrir Fjallabyggð að hafa varðskipið hér. Með auknum skipaferðum um norðurslóðir skiptir viðbragðsgeta Landhelgisgæslunnar miklu máli og staðsetning Freyju á Siglufirði er mikilvægur hluti af því öryggisneti.

Nýlega var samstarfssamningur Fjallabyggðar og Landhelgisgæslunnar um aðstöðu og þjónustu við skipið endurnýjaður og það er ánægjulegt.

En það sem stóð líka upp úr heimsókninni var góði andinn um borð. Þar var greinilega létt yfir mannskapnum.

Ég sé eiginlega mest eftir því að hafa ekki náð mynd af nánast allri áhöfninni þar sem hún var samankomin við að skoða sérstakan jólapappír á Temu.

Hver sagði að lífið á varðskipi snerist bara um alvarleg öryggismál?

Þegar já þýðir líka nei

Eitt af því sem ég hef þurft að læra í nýja starfinu er að þegar maður segir já við einhverju er maður oft um leið að segja nei við einhverju öðru.

Og stundum er það svolítið erfitt.

Í dag er haldin Uppspretta Suðurlands á Selfossi, hátíð nýsköpunar, vaxtar og verðmætasköpunar. Þar er meðal annars verið að kynna fyrstu nýsköpunarstefnu Suðurlands, sem ég fékk að taka þátt í að móta í gegnum störf mín hjá RATA.

Ég hef líka átt þess kost að vinna með nokkrum sveitarfélögum á Suðurlandi að mótun atvinnustefnu og því hefði verið sérstaklega gaman að vera viðstödd þennan áfanga.

En Norðurland á hug minn og hjarta þessa dagana og því varð ég að láta mér nægja að fylgjast með úr fjarlægð.

Ég vil samt nota tækifærið og óska Sunnlendingum og þá sérstaklega SASS og Háskólafélagi Suðurlands innilega til hamingju með þennan mikilvæga áfanga.

Það er ótrúlega gaman að sjá hugmyndir og samtöl, sem maður hefur tekið þátt í að koma af stað, verða að einhverju áþreifanlegu.

🚀
Það er nefnilega fátt skemmtilegra en að sjá góðar hugmyndir verða að veruleika.

Jólakvöld, leynifundir og jólabjór

Það var líka aldeilis líf í bænum á jólakvöldinu á Siglufirði!

Ég kíkti í bæinn og það var eiginlega magnað að sjá stemninguna. Troðfullt af fólki, mikið fjör og greinilegt að fólk kann vel að gera sér glaðan dag hérna.

Þetta er einmitt eitt af því sem mér finnst svo heillandi við Fjallabyggð. Það er alltaf eitthvað um að vera og fólk er duglegt að mæta, taka þátt og skapa stemningu.

Svo mætti ég á minn fyrsta eiginlega leynifund í bæjarstjórastarfinu.

Þegar mér var boðið á fundinn fylgdu nefnilega þau fyrirmæli að ég ætti helst ekki að koma á bílnum mínum. Það mætti ekki sjást hvar ég væri.

Ég verð að viðurkenna að þetta fannst mér afskaplega skemmtilegt.

Mér varð strax hugsað til þess að ég þyrfti líklega að fjárfesta í svörtum frakka, hatti og mögulega sólgleraugum. Kannski ætti ég líka að fara að æfa mig í að líta dularfull út.

En þið getið alveg sparað ykkur að spyrja. Ég mun aldrei segja hvar ég var!

Og rétt þegar maður heldur að það sé búið að gera nóg í einni viku kemur í ljós að í dag er líka J dagurinn, sjálfur jólabjórsdagurinn, og honum verður að sjálfsögðu fagnað.

Það er greinilega ekkert verið að bíða eftir desember til að koma jólunum almennilega af stað.

Aðalbakarí - Alltof mikil lífsgæði á einum stað

Ævintýrin eru á landsbyggðinni

Það er stundum talað um að það sé svo mikið að gerast í Reykjavík.

Og vissulega er það rétt.

En eftir vikur eins og þessa get ég ekki annað en brosað yfir því hversu fjölbreytt lífið er hér norður frá.

Hér eru stór og mikilvæg verkefni, öflugt atvinnulíf, skemmtilegt fólk, óvæntir fundir og óteljandi tækifæri til að taka þátt í einhverju nýju.

Og ef manni leiðist getur maður greinilega alltaf farið á golfvöllinn á gönguskíðum.

Ævintýrin eru svo sannarlega í landsbyggðunum.

Góða helgi!