Vika 8 - Gaur, þetta er bæjarstjórinn!

Vika 8 - Gaur, þetta er bæjarstjórinn!
Við hreinsunarstörf í kjölfar óveðursins 14. október 2026

Það er ýmislegt sem maður býst við þegar maður tekur við starfi bæjarstjóra. Fundir, fjárhagsáætlanir, stefnumótun, ákvarðanir og endalaus verkefni. En svo eru það allir hlutirnir sem enginn sagði manni frá í atvinnuviðtalinu.

Ég er til dæmis nokkuð viss um að það hafi hvergi komið fram að ég þyrfti að kunna skil á fráveitudælum, snjótroðurum, E.coli gerlum, lausum þakplötum og því hvernig á að ávarpa bæjarstjórn með tilheyrandi formlegheitum.

Allt á sömu vikunni.

En innan um allt þetta er starfið líka alveg ótrúlega skemmtilegt. Sérstaklega vegna fólksins sem maður fær að kynnast og vinna með.

🤠
Það er fátt sem kemur mér lengur á óvart. Sem er auðvitað nákvæmlega það sem ég hugsa rétt áður en eitthvað kemur mér rækilega á óvart.

Bæjarstjórinn og mamma hennar í eftirlitsferð

Helgin byrjaði á því allra besta, fjölskylduheimsókn. Ómetanlegur tími sem ég reyni að njóta eins vel og hægt er.

Á laugardagsmorgninum ákvað ég þó að sameina gagn og gaman og bauð mömmu með mér í göngutúr um bæinn. Tilgangurinn var að taka stöðuna eftir óveðrið og skoða hvort einhvers staðar þyrfti að bregðast við til að koma í veg fyrir frekara tjón.

Þegar við röltum niður á Túngötu sáum við nokkra vaska unga menn í óðaönn að fjarlægja þak sem fauk af iðnaðarbili við Ránargötu.

Ég ákvað auðvitað að heilsa upp á þá.

Þá hnippti einn félaginn í annan og sagði:

„Gaur, þetta er bæjarstjórinn!“

Viðbrögðin létu ekki á sér standa.

„Ha? Ég hef bara aldrei séð bæjarstjóra Fjallabyggðar!“

Ég gat sem betur fer svarað um hæl:

„En hefur þú einhvern tímann séð bæjarstjóra Fjallabyggðar með mömmu sína í eftirlitsgöngutúr?“

Það hafði hann ekki heldur.

Og þar með vorum við líklega öll búin að upplifa eitthvað nýtt þennan morgun.

Við mamma fengum síðan einstaklega hlýjar móttökur í Raffó og áður en ég vissi af var öll fjölskyldan mætt til að fræðast um rafmagn, dælur í fráveitubrunnum og ýmislegt annað sem ég hafði ekki endilega séð fyrir mér sem dagskrá fjölskylduheimsóknar.

En einmitt svona augnablik finnst mér svo skemmtileg.

Að hitta fólk á förnum vegi, kynnast því sem það er að gera og fá smá innsýn í hversu margt fjölbreytt er í gangi í bæjarfélaginu okkar.

Hreinsunarstarf og áhugaverði veggurinn í Raffó

Og eins og það væri ekki nóg að draga fjölskylduna með í eftirlitsgöngu, þá enduðum við líka á að veiða ruslatunnur upp úr Hvanneyrará.

Ég er enn að átta mig á hvort þetta tilheyri starfslýsingu bæjarstjóra en stundum þarf ekkert að flækja hlutina. Maður sér eitthvað sem þarf að gera, brettir upp ermar og gerir það bara. Helst með bros á vör og góðum félagsskap.

Og það verður nú að segjast að fjölskyldan stóð sig með prýði í sinni fyrstu óformlegu starfsþjálfun hjá Fjallabyggð. 😂

Hver á að ná í þessar ruslatunnur? er það ég?
...og svo kaffipása samkvæmt kjarasamningum ;)

Fjárhagsáætlun, gullmolar og fjölskylduknús

Fjárhagsáætlun ársins 2027 heldur áfram að vera fyrirferðarmikill þátttakandi í lífi mínu. Hún er farin að mæta með mér í vinnuna, fylgja mér heim og láta reglulega vita af sér þegar ég er að hugsa um eitthvað allt annað.

Það hafa farið ófáir klukkutímar í yfirferð, samtöl og vangaveltur um hvernig við nýtum fjármuni sveitarfélagsins sem best. Þetta er mikil vinna og ótal hlutir sem þarf að vega og meta. Sem betur fer finnst mér þetta líka áhugavert, þótt ég viðurkenni að stundum væri ágætt að hafa aðeins fleiri klukkutíma í sólarhringnum.

Ég fékk síðan afskaplega gott boð á aðalfund Félags eldri borgara þar sem heilmargir voru mættir.

Þar sagði ég frá sjálfri mér, hvaðan ég kem, hvernig ég sé stöðu mála og hvert mig langar að stefna með Fjallabyggð.

Að venju talaði ég nokkuð hispurslaust, enda kann ég eiginlega ekki annað.

Það besta við svona fundi er þó ekki það sem ég hef sjálf að segja, heldur það sem ég fæ að heyra.

Ég fór þaðan með heilmikið af gullmolum, góðum ráðum og nýjum sjónarhornum.

Það er nefnilega dýrmætt að fá að læra af fólki sem hefur fylgst með samfélaginu þróast í áratugi. Fólki sem þekkir söguna, man hvað hefur verið reynt og veit jafnvel hvers vegna sumt gekk ekki alveg eins og til stóð.

🎡
Við þurfum ekki alltaf að finna upp hjólið. Stundum er miklu skynsamlegra að hlusta á þá sem hafa þegar prófað að láta það snúast.

Inni á milli náði ég svo að skjótast til Akureyrar í fjölskylduknús. Svona litlir viðkomustaðir eru ekki síður mikilvægir á annasömum vikum.

Stórframkvæmdir og símtalið sem breytti vikunni

Í vikunni átti ég einnig undirbúningsfund vegna Fljótaganga.

Ég held að fæstir geri sér grein fyrir hversu margt þarf að smella saman þegar undirbúnar eru stórframkvæmdir af þessari stærðargráðu. Það eru ótal þræðir sem þarf að halda utan um, fjölmargir hagsmunaaðilar, mismunandi sjónarmið og alls konar ákvarðanir sem þarf að undirbúa löngu áður en fyrsta skóflustungan er tekin.

Það sem blasir við almenningi er oft framkvæmdin sjálf. En á bak við hana liggur gríðarleg vinna sem fæstir sjá.

Mér finnst einmitt áhugavert að fá að kynnast þessum hluta stjórnsýslunnar betur. Að sjá hvernig hlutirnir tengjast og hversu margir þurfa að leggjast á eitt til að stór verkefni geti orðið að veruleika.

Og svo kom símtalið.

Ætli það sé ekki orðið nokkuð hefðbundið upphaf á ævintýrum bæjarstjóra?

Bráðabirgðaniðurstöður úr reglubundnu eftirliti bentu til þess að E.coli gerlar hefðu fundist í vatnssýni.

Þá fóru öll hjól af stað.

Það þurfti að koma upplýsingum hratt og örugglega til íbúa, framleiðenda og þjónustuaðila á svæðinu. Samhliða þurfti að vinna að viðeigandi aðgerðum, frekari rannsóknum og úrbótum.

Svona mál minna mann rækilega á ábyrgðina sem fylgir starfinu. Það er auðvelt að tala um mikilvægi grunnþjónustunnar, en þegar eitthvað kemur upp á verður manni enn betur ljóst hversu miklu máli hún skiptir. Man alltaf eftir heilræði sem ég fékk um daginn þegar ég sagðist ætla að verða skemmtilegasti bæjarstjóri landsins. Þá fékk ég að heyra "Það skiptir engu máli hversu skemmtileg þú ert ef það er eitthvað að vatninu eða annarri grunnþjónustu". Satt er það!

Það sem stendur þó upp úr hjá mér er hversu margir koma að því að leysa svona verkefni. Bak við hverja tilkynningu og hverja aðgerð er fólk sem leggur sitt af mörkum til að tryggja öryggi og velferð íbúanna.

Það er bæði lærdómsríkt og svolítið hughreystandi að sjá hversu öflugt samstarf getur orðið þegar á reynir.

💡
Það er auðvelt að taka grunnþjónustunni sem sjálfsögðum hlut, alveg þar til eitthvað fer úrskeiðis. Þá sést hversu mikilvæg hún er og hversu margir leggja sitt af mörkum til að halda henni gangandi. Þar á Tæknideildin og Þjónustumiðstöðin stórt hrós skilið.

Liðsheild, mildi og fagmennska

Ég fékk líka að kíkja við á starfsmannafundi Grunnskóla Fjallabyggðar sem haldinn var í Ólafsfirði.

Mér finnst alltaf jafn notalegt að koma aftur inn í gömlu skólastofuna mína, sem er nú orðin matsalur. Það er eitthvað sérstakt við að ganga inn í hús þar sem maður á ótal minningar og sjá það nú frá allt öðru sjónarhorni.

Það sem stóð sérstaklega upp úr á fundinum var sýn skólastjóra fyrir skólaárið:

🫶
Liðsheild. Tölum hvert annað upp. Sköpum jákvætt og hvetjandi andrúmsloft. Hjálpumst að. Sýnum okkur sjálfum og öðrum mildi.

Mér fannst þetta svo falleg og mikilvæg skilaboð.

Og eiginlega ekki bara fyrir starfsfólk skóla. Þetta eru skilaboð sem við gætum öll haft gott af að tileinka okkur, hvort sem er í vinnunni, heima fyrir eða í samfélaginu almennt.

Mér láðist alveg að taka myndir af fundinum enda var hausinn á mér á þessum tímapunkti ansi djúpt sokkinn í vatnsgæðamál.

Í beinu framhaldi tók svo við rýnifundur í kjölfar óveðursins sem gekk yfir Siglufjörð 14. október.

Fundurinn var haldinn að frumkvæði lögreglunnar og þar komu saman helstu viðbragðsaðilar sem höfðu tekið þátt í aðgerðum vegna óveðursins.

Ég verð að segja að sá fundur var til mikillar fyrirmyndar.

Fagmennskan, skipulagið og vinnubrögðin voru einstaklega góð. Farið var yfir það sem hafði gengið vel, hvað mætti læra af og hvernig hægt væri að bæta viðbrögðin enn frekar.

Þetta er að mínu mati eitt af því allra mikilvægasta sem við gerum eftir svona atburði. Ekki bara að klappa okkur á bakið fyrir það sem gekk vel, heldur líka að þora að skoða það sem hefði mátt fara betur.

Það er nefnilega þannig sem við verðum betri.

Og þarna sat ég og hugsaði hvað það væri í raun einstakt að fá að tilheyra svona heild.

Fólki sem mætir þegar á reynir, tekur ábyrgð, vinnur saman og hefur sameiginlegt markmið um að gæta öryggis samfélagsins okkar.

Viðbragðsaðilar voru þó ekki eins bleikir og partur af starfsfólki Ráðhúsins

Dagurinn sem ég þorði varla að hafa fundalausan

Svo rann upp fimmtudagurinn.

Dagatal dagsins var óvenjulegt. Ekki einn einasti fundur fyrr en klukkan 17, þegar minn allra fyrsti formlegi bæjarstjórnarfundur átti að hefjast.

Ég verð að viðurkenna að það var næstum því óþægileg tilfinning.

Fundalaus dagur?

Það hlaut eitthvað að vera að.

Eftir síðustu vikur hef ég nefnilega lært að þegar maður heldur að nú geti fátt komið manni á óvart, þá er yfirleitt stutt í næsta atvik sem fær mann til að hugsa:

„Já, okey. Þetta er sem sagt bara að gerast.“

Ég reyndi því að njóta þess að geta einbeitt mér að verkefnum sem höfðu beðið eftir athygli, lært aðeins betur á ýmislegt og undirbúið kvöldið.

Og svo var komið að fyrsta bæjarstjórnarfundinum.

Ég verð að segja að hann var mjög áhugaverður. Það sem mér finnst hins vegar einna mest krefjandi við þessa nýju veröld eru öll formlegheitin. Ég er vön að koma mér beint að efninu, tala mannamál og helst sleppa öllu sem mér finnst óþarflega flókið.

En á bæjarstjórnarfundum gilda ákveðnar hefðir og reglur.

Og ég náði ekki einu sinni að ávarpa fundinn rétt!

Það er greinilega ýmislegt sem ég á eftir að læra.

Sem betur fer held ég að ég hafi komist nokkuð klakklaust frá þessum fyrsta fundi, þótt ég segi sjálf frá.

Og það er nú einu sinni þannig að batnandi fólki er best að lifa.

Það góða við þetta starf

Þegar ég lít yfir vikuna er það ekki fjárhagsáætlunin, fráveitudælurnar eða E.coli gerlarnir sem sitja sterkast eftir.

Það er fólkið.

Ungu mennirnir sem tóku á móti okkur mömmu á laugardagsmorgni. Eldri borgararnir sem voru ófeimnir við að miðla af reynslu sinni. Starfsfólk skólans sem leggur áherslu á liðsheild og mildi. Viðbragðsaðilarnir sem sýndu hvað fagmennska og samvinna geta skipt miklu máli.

Og allt hitt fólkið sem ég fæ að hitta og vinna með á hverjum degi.

Ég held að það sé auðvelt að festast í því sem er að, því sem vantar og því sem þarf að laga. Enda er það stór hluti af starfinu að takast á við einmitt þá hluti.

En það má ekki gleyma að sjá allt það sem er gott.

Og það er svo sannarlega margt gott í Fjallabyggð.

Ég er enn að læra á þetta starf, fólkið, kerfin og allar þær óskrifuðu reglur sem virðast fylgja sveitarstjórnarmálum. Stundum finnst mér ég hafa náð ágætis tökum á hlutunum. Svo hringir síminn eða einhver biður mig um að ávarpa forseta bæjarstjórnar og ég átta mig á að ég er rétt að byrja.

En það er líka það sem gerir þetta svo skemmtilegt.

Og nú stefni ég á að pakka niður tjaldinu og halda í útilegu um helgina. Það er fátt sem jafnast á við að komast út í náttúruna, draga andann djúpt og fá smá fjarlægð á verkefnalistann.

Gleðilegt haustfrí allra í Fjallabyggð og njótið þess að drekka hreina vatnið okkar, sjá gleðitíðindin HÉR