Vika 9 - Mýs, mannorð og metnaður
Fjölskyldan fór suður í haustfrí um síðustu helgi og ég fékk því svolítinn tíma ein heima.
Það var eiginlega alveg dásamlegt.
Ekki það að mér þyki ekki vænt um fólkið mitt, en stundum er ótrúlega gott að fá smá einrúm og ná hausnum utan um hlutina.
Ég nýtti tímann til að hugsa um stóru myndina. Hvert viljum við stefna með Fjallabyggð? Hvað þarf að breytast? Hvar liggja tækifærin? Og hvernig ætlum við að koma okkur þangað?
Svo var það auðvitað aðeins minna rómantíski hlutinn. Ósvaraði tölvupósturinn, verkefnalistinn og allt hitt sem hefur safnast upp á meðan ég hef verið að sinna því sem er mest aðkallandi hverju sinni.
Og já, komst ekki hjá því að kíkja á Facebook og varð í framhaldinu töluvert fróðari um málefni sambýlisins. Ég ætla ekki að hafa mörg orð um það hér, en áhugasöm geta kynnt sér umfjöllun Trölla um málið.
Ég náði síðan þeim merka áfanga að tæma tölvupósthólfið mitt.
Það var stórkostleg tilfinning.
Hún entist í tvo daga.
Ég held að það sé ágætis samantekt á því hvernig gengur að ná utan um verkefnin þessa dagana.
Það gerðist líka ýmislegt annað!
Þrátt fyrir að einstök mál hafi verið fyrirferðarmikil í umræðunni þessa vikuna hélt auðvitað allt hitt áfram sinn vanagang. Það er nefnilega ótrúlega margt sem gerist á bak við tjöldin í rekstri sveitarfélags og fæst af því ratar nokkurn tímann í fréttirnar.
Fjárhagsáætlun ársins 2027 heldur áfram að taka sinn skerf af tímanum og í vikunni áttum við mikilvægan forgangsröðunarfund. Það er auðvitað alltaf auðveldara að finna verkefni sem okkur langar að ráðast í en að ákveða hver þeirra þurfa að bíða. En það er einmitt það sem fjárhagsáætlunargerð snýst að stórum hluta um.
Ég átti líka fund um kjaramál kennara og í beinu framhaldi mánaðarlegan samstillingarfund með skólastjóra og sviðsstjóra velferðarsviðs. Mér finnst þessir fundir sérstaklega mikilvægir. Að setjast niður, bera saman bækur, ræða það sem gengur vel og það sem þarf að bæta.
En eitt af skemmtilegri verkefnum vikunnar var að klára og senda inn umsókn í Framkvæmdasjóð ferðamannastaða.
Þarna fann ég mig heldur betur!
Þar var búið með góðum stuðningi frá SSNE að taka hugmynd, móta hana, velta fyrir sér tækifærunum, finna leiðir til fjármögnunar og sjá fyrir sér hvernig hægt væri að gera hana að veruleika. Þ
Og þarna, mitt á milli fjárhagsáætlunar, funda og alls hins, fékk ég ágætis áminningu um hvers vegna ég sóttist eftir starfi bæjarstjóra.
Um mannorð og að standa með sjálfum sér
Ég fékk ýmsar viðvaranir áður en ég tók við starfi bæjarstjóra.
Þær alvarlegustu snerust um mannorðið mitt.
Mér var bent á að mannorðið væri eitt það dýrmætasta sem maður ætti og að ég þyrfti að gæta þess vel.
Ég hef hugsað töluvert um þetta í vikunni.
Og niðurstaðan mín er einföld.
Ég get ekki stjórnað því hvað aðrir segja, hugsa eða gera. En ég get stjórnað því hvernig ég bregst við.
Ég ætla áfram að vera hispurslaus, forvitin, metnaðarfull og tilbúin að hlusta. Ég ætla líka að gera mistök, læra af þeim og halda áfram.
Það þýðir ekki að allt eigi að líðast eða að maður eigi að láta hvað sem er yfir sig ganga.
En ég vil að verkin mín tali.
Músagangur í ráðhúsinu!
Og svo var það músagangurinn.
Já, það var músagangur í ráðhúsinu í vikunni.
Áður en einhver fer að hringja í meindýraeyði þá er rétt að taka fram að hér er um tölvumýs að ræða.
Ég hlakka eiginlega svolítið til að heyra þessa sögu þegar hún hefur farið nokkra hringi um bæinn.
Það kæmi mér alls ekki á óvart ef ég fengi fljótlega spurningu um hvort ekki ætti að loka ráðhúsinu vegna músaplágunnar.
En svona er nú lífið. Það er alltaf eitthvað að gerast í ráðhúsinu!
Litlu hlutirnir sem gleðja
Þegar ég kíkti við í grunnskólanum í Ólafsfirði, fékk ég að skoða ýmislegt.
Það var farið yfir allt frá þörfinni fyrir fjölbreytt rými í skólanum yfir í nýju málninguna í stiganum og aðstæður á bílaplaninu. Svo fékk ég auðvitað að sjá geggjaða sófann á kaffistofunni sem ég verð að segja að er ansi girnilegur!
En það skemmtilegasta var eiginlega að fá að setjast aðeins niður með kennurunum á kaffistofunni.
Þar var greinilega líf og fjör, góður húmor og skemmtilegur andi. Ég fékk líka að fylgjast með framgangi jólapeysugerðarinnar sem virðist vera komin á ágætis skrið. Það verður spennandi að sjá lokaútkomuna!
Það er eitthvað svo dýrmætt við að fá að kíkja inn í hversdaginn hjá starfsfólki, spjalla um heima og geima og upplifa stemninguna á vinnustaðnum. Ég veit auðvitað að ein kaffistofustund segir ekki alla söguna, en þarna var að minnsta kosti afskaplega gott að vera. Og ég skemmti mér konunglega!
Í framhaldinu ákvað ég svo að halda nostalgíuferðinni áfram og fékk mér anísstykki úr bakaríinu.
Í fyrsta sinn í tuttugu og eitthvað ár!
Og mikið óskaplega var það gott. Stóð alveg undir minningunni!
Stundum þarf nefnilega ekki mikið til að gleðja mann. Góður félagsskapur, smá húmor, jólapeysur í vinnslu og anísstykki úr gamla góða bakaríinu.

Það sem skiptir máli
Ég ætla ekkert að þykjast hafa siglt í gegnum þessa viku með bros á vör allan tímann. Það gerði ég ekki.
En þegar ég lít yfir vikuna sé ég líka heilmargt gott. Skemmtilegt fólk, góð samtöl og verkefni sem þokast áfram.
Þegar öllu er á botninn hvolft er það heilsa og velferð fólks sem skiptir mig mestu máli. Að fólki líði vel, finni til öryggis og fái tækifæri til að blómstra. Við þurfum ekki alltaf að vera sammála, en við getum alltaf lagt okkur fram um að koma vel fram hvert við annað.
Góða helgi! ❤️