Vika mínus 3: Ferskur andblær
Það eru minna en þrjár vikur þar til ég tek formlega við sem bæjarstjóri Fjallabyggðar.
Undirbúningurinn er hafinn, hugurinn er farinn norður og tilhlökkunin farin að gera vart við sig. Ég hlakka til að kynnast fólkinu, verkefnunum og hversdeginum í Fjallabyggð og vonandi koma með ferskan andblæ inn í nýtt starf.
Þessi dagbók er hluti af því. Hér ætla ég að deila því sem drífur á daga mína, fólkinu sem ég hitti, stöðunum sem ég heimsæki og ýmsu því sem gefur innsýn í lífið og starfið í Fjallabyggð.
Markmiðið er einfaldlega að opna aðeins betur inn í hversdaginn og auka upplýsingaflæðið til íbúa, á persónulegan og óformlegan hátt.
Formleg upplýsingagjöf um stjórnsýslu, fundi og ákvarðanir sveitarfélagsins verður áfram þar sem hún á heima, á fjallabyggd.is.
Eins fyrir áhugasama þá býr Fjallabyggð að öflugum staðbundnum fréttamiðlum, meðal annars Héðinsfjörður.is og Trölli.is, sem segja frá því sem er að gerast í samfélaginu. Þessi síða er ekki fréttamiðill heldur mín persónulega dagbók.
...og til að halda sjálfri mér við efnið stefni ég á nýja færslu hér á hverjum föstudegi. Ef þú vilt fá dagbókarfærslurnar mínar í pósthólfið hjá þér þá máttu endilega skrá þig á póstlistann með því að smella hér
Minna en þrjár vikur í fyrsta daginn.
Fjallaloftið bíður.